Næstum uppselt er á tónleika Helga Björnssonar í Eldborg á laugardaginn en Helgi er að endurtaka leikinn frá því í fyrra þegar hann margseldi upp Eldborg í tilefni af 40 ára tónlistarútgáfuafmæli hans. Hægt verður að kaupa aðgang að tónleikunum á laugardaginn í streymi en nokkuð er síðan að landsmönnum gafst tækifæri á að vera “Heima með Helga”. Hér er þó um streymi frá tónleikum með áhorfendum að ræða og landsmenn fá þannig einstakt tækifæri á að kíkja á tónleika í Eldborgarsal Hörpu, heima í stofu.







