ÓJ&K-Ísam ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum ORA Aspas í bitum (hálfdós).
Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur fannst.
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt.






