Tommi á Búllunni sendir myndskeyti:
–
Í marz 2009 voru stýrivextir 18% þá tókum við Úlfar heitinn Eysteinsson veitingamaður á Þrem frökkum upp á því að mótmæla háum stýrivöxtum og í því skyni ákváðum við að hvorki raka skegg eða klippa hár fyrr en vextir færu niður fyrir 10%.
–
Það var svo í janúar 2010 að Már Guðmundsson þáverandi seðlabankastjóri hringdi í mig og tilkynnti mér að daginn eftir mundu vextir loksins fara niður fyrir 10% og í því skyni byði Seðlabankinn okkur Úlfari upp á klippingu og rakstur í anddyri Seðlabankans. Við þáðum með þökkum og fannst við geta hrósað sigri.
–
Það er aftur kominn tími til að mómæla háum stýrivöxtum og hvet ég allar manneskjur að taka saman höndum og safna bæði hári og skeggi (þeir sem það geta). Og mótmæla kröftulega á þennan hátt. Það er nóg komið.
–








