Ferðaþjónustan Tröll, Troll.is, keypti nýverið eitt helsta kennileitið í miðbæ Reykjavíkur, Sólon í Bankastræti, en þar er ekki lengur samnefndur veitingastaður.
„Við erum búnir að selja aftur, áttum þetta aðeins í nokkrar vikur,“ segir Gísli Eyland framkvæmdastjóri Tröll. „Við vorum með áætlanir en þær breyttust.“
– Hver keypti?
„Ég get ekki verið að tjá mig um það.“ –
Hvað kostaði byggingin?
„Ég get ekki heldur tjáð mig um það.“
Byggingin er um 550 fermetrar á þremur hæðum.






