Útibúi Kastlakaffis Hjálpræðishersins á horni Garðarstrætis og Ránargötu var skyndilega lokað eftir þriggja vikna rekstur.
„Við fengum skilaboð frá höfuðstöðvunum í Noregi að þar væri verið að draga saman og þá gildir það líka um okkur,“ segir Ingvi K. Sigurðsson umsjónarmaður fasteigna hjá Hjálpræðishernum á Íslandi. „Þeir urðu allt í einu mjög stressaðir.“
Ekki er Ingva kunnut um hvað valdi þrengingunum hjá Hjálpræðishernum í Noregi en Kastalakaffi Hersins í höfuðstöðvunum við Suðurlandsbraut hefur gengið vel og verið vinsælt meðal almennings.
Hjálpræðisherinn á húsnæðið í Garðastræti sem er mikil forgjöf í veitingareksti í miðbæ Reykjavíkur.







