Home Blog Page 190

ERLENDUM RÍKISBORGURUM Á ÍSLANDI FJÖLGAR HELMINGI HRAÐAR EN ÍSLENSKUM

0

„Alls voru 78.901 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júlí sl. og fjölgaði þeim um 4.478 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 6%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 827 einstaklinga eða um 0,3%,“ segir í vestfirska fréttablaðinu Bæjarins Besta:

„Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 572 eða 14,5% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 212 eða 39,4%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 723 og eru nú 26.335 pólskir ríkisborgarar með skráð lögheimili á Íslandi.“

JÓGA Í SUMARBÚSTAÐINN – HEIMSENDING

0

Take away jóga – tilkynning:

Ertu í sumarfríi en vilt fá jóga heim eða í sumarbústaðinn?

Jógatímar með Jógasetrinu á netinu. Njóttu á þínum hraða á þínum tíma eins oft og þú vilt.

Fjölbreyttir jógapakkar

https://www.jogasetrid.is/netjoga-blandad/

HEIDI STRAND Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

0

Heidi Strand er fædd í Noregi en hefur búið á Íslandi frá því um tvítugt. Hún var í listnámi í Noregi og náði þar fljótt góðum tökum á textil af ýmsu tagi.

Heidi hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982. Síðan þá hefur hún haldið einkasýningar á Norðurlöndum öllum og er sýningin í Listhúsi Ófeigs sú 30. í röðinni. Heidi hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sam- og farandsýningum í bæði Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar sem alþjóðlegar dómnefndir velja verkin, og hafa sumar þessara sýninga farið víða um lönd.

Heidi hefur náð alveg sérstökum tökum á nálaþæfingu og í Listhúsi Ófeigs sýnir hún myndverk af ýmsum stærðum tengd íslenskri náttúru, bæði af kindum en ekki síður af fuglum sem hafa lengi verið henni hugleiknir. Nær öll verkin á sýningunni eru unnin í ár eða i fyrra.

Sýningin verður opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 frá 13. júlí til 7. ágúst nk. og er aðgangur ókeypis.

ZEBRABRAUT TRUFLAR UMFERÐ

0

Í næstu viku er áætlað að hefja framkvæmdir við gönguþverun þar sem Reykjastræti þverar Geirsgötu. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir 15. júlí og klára verkefnið fyrir verslunarmannahelgi.

Samhliða þessari vinnu stendur til að fræsa og malbika Geirsgötu og hluta Kalkofnsvegar og verða lokanir samnýttar eins og hægt er.

Þessi vinna hefur veruleg áhrif á umferðarflæði. Tveimur akreinum Geirsgötu verður lokað í austur en umferð verður áfram til vesturs. Umferð verður færð til vesturs á milli akreina en allri umferð í austur eftir Geirsgötu verður vísað á Hringbrautina.

HELGI BJÖRNS (66)

0

Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða – tónlistarmaðurinn og leikarinn Helgi Björns varð 66 ára í gær. Alvöru stjarna.

RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN (55)

0

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er 55 ára í dag. Hún fær óskalag með The Police:

SPESSI FLUTTI Í ÖRÆFIN – FAUK

0
,,Ég flutti í Öræfi í ágúst síðastliðinn, sem var töluverð áskorun fyrir mig. Þá var haustið að byrja og veturinn með myrkrinu sem varð svartara dag frá degi. Eftir smá tíma áttaði ég mig á því að ég hafði ekkert á móti þessum kröftum í náttúrunni hérna í Öræfum. Krafturinn er þvílíkur að þú hneigir þig auðmjúkur. Hérna sérðu sjóndeildar hringinn þegar bjart er, og á veturnar sest sólin vestur frá þér þar sem þú stendur. Vindurinn og tómið haldast í hendur í þessu verki og vísa í tómið sem ég horfði inn í, þessi grái suddi sem varð dekkri með hverjum deginum. Einnig vísar verkið til tómsins sem ég upplifði í sálinni við að flytja svona afskekkt. Nú er sumarið komið og ég sé sjóndeildarhringinn; hinn eiginlega og sjóndeildarhringinn í sjálfum mér.’’
Föstudaginn 12. júlí kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Spessa í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið FAUK og stendur til sunnudagsins 4. ágúst. Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar þar sem boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.
Ljósmyndarinn Sigurþór „Spessi“ Hallbjörnsson er einn af mikilvægustu sjónrænum annálahöfundum Íslands. Stíll hans er djarfur, einfaldur og afhjúpandi, en hlaðinn húmor, samúð og skilningi á viðfangsefnum, stöðum eða aðstæðum sem hann myndar. www.spessi.com

REYKJAVÍK TODAY

0

Reykjavík today / horft til vesturs / erla þórarinsdóttir

ALEXANDER HOLROYD ÞINGMAÐUR FRAKKA Á ÍSLANDI

0

Alexander Holroyd úr Miðjubandalagi Macron forseta var kjörinn þingmaður Frakka sem búsettir eru í Norður Evrópu eftir kosningakerfi sem greint var frá í frétt hér.

Holroyd fékk 55.8% greiddra atkvæði, hann er 37 ára, náinn samstarfsmaður Macron forseta og er einnig með breskt ríkisfang.

KEVIN BACON (66)

0

Kevin Bacon er sagður í fámennum hópi frægustu leikara heims sem enn hafa ekki verið tilnefndir til Óskarsverðlauna og fyrir bragðið aldrei fengið þau. Hann er afmælisbarn dagsins (66) og ýmislegt til lista lagt: