Home Blog Page 191

TANSANÍA STAL HJARTA SÖLVA

0

„Tansanía hefur stolið hjarta mínu. Frá víðáttumiklum sléttum til líflegra menningar, þetta land er stórkostlegt,“ segir Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður og heldur áfram:

„En það er fólkið sem skín skærast. Hlýja þeirra og góðmennska hafa minnt mig á fegurðina í einfaldleikanum og ríkidæmi samfélagsins. Andi Afríku ristir djúpt hér, bergmálar í hverju brosi og trommutakti. Það er áminning um að Afríka er ekki bara staður, heldur ákall um að lifa í einingarvitund, þar sem taktur lífsins tengir okkur öll.“

LÍFSLEIKNI LINDU

0

„Allir litlu daglegu vanarnir og rútínurnar eru það sem skiptir öllu máli þegar þú vilt gera breytingar til batnaðar,“ segir alheimsfegurðardrottningin og heilsugúrúinn Linda Pé.

SUMARHÁTÍÐIR ÚT UM ALLT

0

Varla er hægt að þverfóta á landinu sumarið 24 vegna sumarhátíða sem dreifa sér þétt eins og sést á þessu korti. Helst eru það sandarnir miklu á suðurströndinni og þjóðgarðurinn í Skaftafelli sem sleppa.

Góða skemmtun!

STEFÁN JÓN FRELSAÐUR

0

„Mér finnst eins og ég sé frelsaður. Það er búið að venja mig af þeim sið að kveikja á sjónvarpinu kl. 19 til að horfa á upprifjun almæltra tíðina, svokallaðar fréttir,“ segir Stefán Jón Hafstein, lengi hluti af stjórnunarteymi Ríkisútvarpsins, en sér nú ljósið:

„Takk RÚV fyrir að bæta við heilli klukkustund í daginn. Og, nei, ég hef annað að gera kl. 21 á kvöldin en fylgjast með því sem allir hafa frétt nú þegar.“

RINGO (84)

0

Ringo Starr trommuleikari The Beatles er 84 ár í dag. Fágætt er að menn eldist jafn vel og hann þó hann hafi ekki alltaf farið að sofa klukkan átta. Það er líklega takturinn – lífstakturinn sem veldur. Megi hann lengi lifa.

FRÖNSKU KOSNINGARNAR OG ÍSLAND

0

Ekki allir sem vita að Frakkar búsettir erlendis hafa samtals 11 þingmenn á franska þinginu. Frakkar á Bretlandseyjum, Skandinavíu, Færeyjum og á Íslandi  skipta með sér einum þingmanni.

Alls er rúmlega 178 þús á kjörskrá í þessu kjördæmi. Yfirleitt hefur frambjóðandi vinstri manna náð kjöri og frambjóðandinn Charlotte Minvielle er talin sigurstranglegust – sjá www.charlotteminvielle.com

HESTAMENN AF LANDSBYGGÐINNI Í ÚTILEGU Í VÍÐIDAL

0

„Hvar ætli allir hestamennirnir utan af landi gisti í höfuðborginni? Það er ekkert tjaldstæði í Víðidalnum,“ sagði maður við annan í sumarblíðunni í gær fjarri Landsmóti hestamanna við Elliðaárnar.

„Þeir hljóta að fá inni hjá vinum og vandamönnum í borginni. Það þekkja allir einhverja í Reykjavík,“ sagði hinn og afgreiddi málið þannig.

En það er öðru nær. Á flötinni fyrir neðan Reiðhöllina í Víðidal er komið tjaldstæði sem aldrei hefur sést þar áður eins og sjá má á þessum myndum.

SIRKUSKÓNGURINN

0

Fæðingardagur bandaríska stjórnmálamannsins, viðskiptajöfursins og sirkuskóngsins P. T. Barnum (1810-1891) sem stofnaði hinn víðfæga sirkus Barnum & Bailey Circus sem var starfræktur í 146 ár. Einnig stofnaði hann með öðrum stærsta ferjufyrirtæki Bandaríkjanna, Bridgeport & Port Jefferson Steamboat Company. Um hann var gerð kvikmyndinni The Greatest Showman.

VÍTISVÉLAR GRÆÐGINNAR

0

Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri er orðin atkvæðamikill áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og bendir réttilega á að ernir séu alfriðaðir:

„Þess vegna eru vítisvélar sem drepa þá óásættanlegar,“ segir hann og á við vindmyllur.

SNJÓMOKSTUR – HJÁLP ÓSKAST

0

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu gatna og húsagatna næsta vetur 2024-2025. Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík.

Útboðin bjóða upp á að fyrirtæki og einyrkjar sem eiga vinnuvélar sem henta í vetrarþjónustu geta tekið þátt í útboðunum.

Áhugasöm eru hvött til að mæta á kynningarfund á Fiskislóð 37c þann 11. júlí næstkomandi klukkan 10.

Að þessu sinni verður um tvö útboð að ræða. Annars vegar fyrir stofnbrautir og hins vegar fyrir húsagötur, sem minni aðilar og einyrkjar sem hafa tæki til umráða geta tekið þátt í.