„Sjálfsmyndin mótar lífið þitt Þú getur aldrei öðlast meira en sjálfsmynd þín leyfir. Því heimurinn í kringum þig endurspeglar alltaf álit þitt á sjálfri þér,“ segir Linda Pétursdóttir alheimsfegurðardrottning í hugleiðingu dagsins:
–
„Sjálfsmynd þín er hugræn mynd sem þú geymir í höfðinu á þér, sem stýrir skoðunum þínum á sjálfri þér, hvernig þú umgengst aðra, hvaða markmið þú setur þér, flíkunum sem þú velur að klæðast, stöðunum sem þú ferð á, launin sem þú þénar og í hvað þú eyðir þeim. Hvernig þú hugsar um líkamann þinn, með hverjum þú ferð á stefnumót, hverjum þú giftist og hverju þú trúir að þú getir afrekað.“






