Helena Eyjólfsdóttir söngkona á Akureyrir er afmælisbarn dagsins (84). Hörðu Eydal sonur hennar sendir henni fallega afmæliskveðju:
„Elsku hjartans besta móðir okkar á afmæli í dag. Þessi síbrosandi, jákvæða, yndislega kona sem hefur farið brosandi gegnum lífið með jákvæðni og fallega brosi hefur heillað alla. Ætíð hefur mamma stutt mig í blíðu jafnt sem stríðu. Þó eingöngu í blíðu undanfarinn 20 ár. Við mæðgin höfum ætíð verið mjög náin. Það er mér ómetanlegt og mömmu vonandi einnig. Innilega til hamingju með daginn þinn í dag elsku besta mamma mín. Við sjáumst í kvöld. Þinn ávallt sonur – ég elska þig endalaust hjartans móðir mín.“






