Stefán Eiríksson útvarpsstjóri Ríkisins
sótti björg í bú í Hagkaupum á Eiðisgranda
á meðan Illugi Jökulsson rithöfundur
skolaði af sér hversdagrykið í Vesturbæjarlaug
og Sigurgísli Bjarnaon veitingamaður á Nings og Hilmar í Morkinskinnu
vættu kverkarnar á Kaldabar
eins og Björn Jörundur og Mörður Árnason á Forréttabarnum
á meðan hjörð menningarvita streymdi út úr Listasafni Reykjavíkur í Tryggvagötu
og teppti alla bílaumferð á meðan stóð.






