Hermann Guðmundsson athafnamaður og forstjóri Kemi bendir á að Bretar hafi ákveðið að hækka skatta á stóreignafólk sérstaklega í boði Rachel Reeves fjármálaráðherra eins og hann orðar það:
„Einn mjög efnaður Breti flutti umsvifalaust til Dubai til að komast undan þessum hækkuðu sköttum. Hann hafði verið að greiða jafnháa skatta og allir íbúar Leicester borgar í Bretlandi samanlagt. Skattstofninn fór og hinir borga meira.“






