Home Blog Page 29

NÝÁRSBOÐ FORSETANS EINS OG EIN BUNA Í RÚLLUSTIGANUM Í KRINGLUNNI

0

Forseti Íslands bauð hátt í sex hundruð manns í fjölmennt nýársboð á þrettándanum. Á boðslistanum voru ýmsir háttsettir embættismenn, fulltrúar hagsmuna- og íþróttasamtaka, trúfélaga, atvinnulífsins og menningarstofnana. Þó eru nokkur áberandi nöfn sem vantaði. Um þetta segir Óskar Magnússon rithöfundur, lögræðingur, bóndi í Fljótshlíð og stjórnarformaður Eimskips:

„Voru það tæknileg mistök að nánast allt íslenskt atvinnulíf var sniðgengið? Eingöngu fáeinum forsvarsmönnum samtaka á sviði atvinnulífs var boðið.
Það er rangt hjá forsetaritara að ,,löng hefð“ sé fyrir lista um sem lá til grundvallar.
Forystumenn í íslensku arvinnulífi hafa lengst af verið í þessu boði.
Flestir þeirra sem þarna voru lifa á framlagi íslenks atvinnulífs til þjóðarbúsins.
Annars er þetta álíka merkilegt boð og að fara eina bunu í rúllustiganum í Kringlunni.“

SKOTIÐ Í FÓKUS

0

Fókus – félag áhugaljósmyndara tekur yfir sýningarrýmið SKOTIÐ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2026.

Á árinu verða settar upp sjö ólíkar sýningar sem 46 félagsmenn taka þátt í undir stjórn sýningarnefndar félagsins og nefnist sýningarröðin „Skotið í FÓKUS 2026“.

Þann 9. janúar kl. 16.00 opnar fyrsta sýningin og nefnist hún „Hreyfing“. Orðið „hreyfing“ má túlka í ljósmynd á mismunandi vegu, til dæmis með því að frysta hreyfingu í mynd, fylgja hreyfingu eftir með myndavélinni, eða taka myndir af ýmsum „hreyfingum“ samfélagsins, svo sem verkalýðshreyfingu eða mótmælahreyfingu.

Sýnendur eru:

Dagþór Haraldsson   

Geir Gunnlaugsson

Ósk Ebenesersdóttir

Ólafur Magnús Håkansson

Sveinn Aðalsteinsson

Þorsteinn Friðriksson

Fókus er félag áhugaljósmyndara á höfuðborgarsvæðinu sem stofnað var árið 1999. Það er frábær vettvangur fyrir fólk sem vill þróa ljósmyndafærni sína og hæfileika.

HROSSIN HÁMA Í SIG JÓLATRÉ

0
Allt búið er leið að kvöldi.
Allt búið er leið að kvöldi.

Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi er hugmyndaríkur jafnt í útgáfu sinni sem og hrossahaldi. Hann gaf hestunum sínum jólatré og þau voru ánægð með. Sló tvær flugur í einu höggi.

ELVIS (91)

0

Elvis Presley (1935-1972) hefði orðið 91 árs í dag en hann lést aðeins 42 ára gamall. Líklega á lista yfir frægustu persónur mannkynssögunnar ef sá listi væri til. Blessuð sé hans minning.

INGA SÆLAND HLÍFIR ELDRI BORGURUM VIÐ ÁRLEGRI LÆKNISSKOÐUN TIL AÐ HALDA ÖKURÉTTINDUM

0

Inga Sæland er ötull ráðherra og réttsýn þó sjónskert sé. Nú tilkynnir hún að 65 ára og eldri sleppa við árlega læknisskoðun til 75 ára til að halda ökuréttindum:

„Lengst af hefur eldra fólk verið skikkað í árlegar læknisskoðanir og endalaus vottorð til að halda ökuleyfi, oft án raunverulegs ávinnings. Nú er verið að breyta þessu, meðal annars með hliðsjón af því hvernig þessu er háttað í nágrannalöndunum.

Heilbrigði eldri borgara hefur stórbatnað og aldur einn og sér segir takmarkað um akstursgetu. Þess vegna verður lögð meiri áhersla á færni, heilsu og raunverulegar aðstæður.

Það er ekki um háa slysatíðni að ræða hjá fólki á aldrinum 65 til 75 ára. Hátt hlutfall slysa í umferðinni er frekar hjá yngri ökumönnum.

Þetta er skref í átt að mannlegra og nútímalegra kerfi. Minni skriffinnska, meiri virðing og einfaldara líf fyrir fólk.“

KERTI Á BORÐSHORNI

0
kveiki á einu kerti
og heimur verður til
verður
endalaus víðátta
verður
þröngur hellir
verður
allt þar á milli
enn brennur kerti mitt
á borðshorni
Jónatan Hermannsson

ANNA MJÖLL (56)

0

Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona búsett í Bandríkjunum er afmælisbarn dagsins (56). Dóttir tónlistarhjónanna Svanhildar Jakobsdóttur og Ólafs Gauks sem samdi lag og texta fyrir  hana sem hún síðan söng í Eurovison fyrir Íslands hönd 1996 í Osló. Hún hafnaði í 13. sæti.

HNATTRÆN HLÝNUN?

0

„Þetta er ábyggilega út af þessari hnattrænu hlýnun,“ segir Ragnar Önundarson samfélagsýnir og fyrrum bankastjóri i morgunhugleðingu sinni.

HROSSAKJÖT VEITIR VELLÍÐAN

0
Árni með hundinn sinn.

„Við Íslendingar borðum hrossakjöt: reykt, saltað, bjúgu – sem eðlilegan hluta af lífsviðurværi okkar. En hvers vegna, og af hverju er þetta á skjön við flestar Evrópuþjóðir sem líklega finnst þetta villimannlegt?“ spyr Árni Sigurðsson fyrrum framkvæmdastjóri og heimspekingur og svarar spurningunni svo sjálfur:

„Kannski vegna miklu eldri uppruna okkar. Matarhefð, mann fram af manni, frá tímum áður en „víkingar“ urðu að sjálfsmynd. Thor Heyerdahl setti fram þá tilgátu að slíkar rætur megi rekja langt austur, jafnvel til Aserbaídsjan, „Ásalands“ í hans hugmyndafræði.
Hvort sem sú kenning stenst eða ekki, þá snertir hún eitthvað dýpra: bergmál úr tíma þegar þetta snerist ekki um smekk eða siðferði, heldur einfaldlega um það sem virkaði. Við fylgjum því enn, án þess að vita nákvæmlega af hverju. En það fær okkur til að líða vel.“

LYKLAVÖLD ÞÓRHALLS

0
Lyklavöldin er nýr sjónvarps og hlaðvarpsþáttur sem fjölmiðlamaðurinn Þórhallur Gunnarsson kynnir til leiks:
Þátturinn fjallar að mestu um íslenska pólitík, atvinnulíf og auðvitað komandi borgar og sveitarstjórnarkosningar. Einhverjir stjórnmálamenn mæta en helst vil ég ræða við fólk sem hefur góða þekkingu á helstu málaflokkum og með tillögur að lausnum.
Ég vil fá gesti sem leggja sig fram um að útskýra flókin mál með einföldum hætti.
Mig langar að byggja umræðuna á góðum gögnum, tölfræði eða skýrum upplýsingum.
Ég þigg frá ykkur allar ábendingar að viðmælendum sem hafa enga aðra hagsmuni en að skýra mál og greina þau.
Lyklavöldin verða aðgengileg á Klakinn Stúdíó, Spotify, Youtube og Apple Podcast. Hlakka til að heyra hugmyndir ykkar að viðmælendum og efnistökum. Fyrsti þáttur fer í útsendingu þann 20. janúar.