Home Blog Page 28

ÁRSHÁTÍÐ BORGARSTJÓRNAR

0

Þessi mynd var tekin á árshátíð borgarstjórnar Reykjavíkur í gærkvöldi. Borgarstjórinn í fogrunni í æðislegum galla.

HANNES, HEILSAN OG HAMINGJAN

0

„Heilbrigðiskerfið íslenska er um margt gott, en mér finnst eitt vanta í það, raunverulega heilsuGÆSLU, og með því á ég við forvarnir, ekki aðeins tilraunir til að lækna sjúkdóma eða halda þeim niðri. Ég á við að afstýra, ekki aðeins bregðast við,“ segir Hannes Hólmsteinn í morgunhugleiðingu frá Rio de Janeiro

„Það er erfitt að fá almenna og reglubundna læknisskoðun á Íslandi, þegar ekkert virðist ama að. En til eru margir einkennalausir og því lævísir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, krabbamein í blöðruhálskirtli og hæg fylling kransæða. Ég leysi þetta verkefni með því að fara reglulega í almenna og yfirgripsmikla skoðun hjá heimilislækninum mínum í Rio de Janeiro og greiða fyrir blóðsýnatöku, ómskoðun og aðrar rannsóknir, en þetta er ekki á allra færi. Tryggingarnar íslensku eiga lögum samkvæmt að endurgreiða tvo þriðju af kostnaðinum, en eru tregar til þess og krefjast ótal vottorða um þörfina. Þörfina?

Faðir minn varð bráðkvaddur 63 ára, móðir mín lést úr krabbameini 74 ára, og ég er að verða 73 ára! Ég reyni að ganga út úr þessum augljósa áhættuhóp með því að ganga daglega í klukkustund eftir Copacabana ströndinni, en einnig með því að drekkja öllum sýklum í vínanda. Ég sagði alltaf nemendum mínum, að raða mætti lífsgæðunum svo, að mikilvægust væri góð heilsa, síðan þægilegir fjöskylduhagir og loks rúm fjárráð. Hamingjan fæst ekki keypt með peningum, en þeir gera óhamingjuna bærilegri.“

GRÆNLAND VERÐI EPSTEIN ISLAND

0

Í Danmörku eru uppi hugmyndir um að endurnefna Grænland Epstein Island svo Trump minnist ekki á það aftur.

GAMALT LESENDABRÉF

0

SAMÚEL TIL SÖLU – 400.000

0

Þórarinn Jón Magnússon, gamalreyndur ritstjóri tímaritsins Samúel sem var og hét, brá sér á samsýningu ungra myndlistamanna í Ásmundarsal og rakst þar á málverk af Samúel:

„Þessi mynd var mér mjög að skapi. Var samt ekki alveg tilbúinn að kaupa hana á uppsettu verði, 400 þúsund krónur. Hvað hefði hún kostað í lit? Dýr væri Samúel allur. Myndlistarmaðurinn heitir Arnfinnur Árnason ef einhver vill festa kaup á myndinni og svo ólíklega vilji til að hún sé óseld.“

ÁRMANN TEKUR SÆTI Í ELDRIBORGARARÁÐI ÞJÓÐKIRKJUNNAR

0

Ármann Reynisson hefur tekið sæti í Eldriborgararáði íslensku þjóðkirkjunnar sem sjálfboðaliði að tillögu séra Báru Friðriksdóttur forstöðumanns ráðsins.

„Ég vona að geta orðið að liði og látið gott af mér leiða á þessum nýja vettvangi lífs míns,“ segir hann.

ROD STEWART (81)

0

Rod Stewart er 81 árs  í dag, 10 árum yngri en Elvis. Hann hefur staðið í sviðsljósinu í sex áratugi og sér ekki högg á vatni eftir 120 milljónir seldra hljómplatna. Töffari sem tíminn vinnur vart á.

GUSUSÁNA VIÐ SELFOSS

0

„Markmiðið er að byggja sánu og bjóða uppá heilsubætandi gusur, bæði fyrir líkama og sál. Sveita Sauna er staðsett í fallegri skógrækt með fallegt útsýni í 15 mínútna akstursfjarlægð  frá Selfoss,“ segir Sigmar Örn Aðalsteinsson sem safnar fyrir sánunni á Karolina Fund, setur markið á 8.000 evrur og hefur þegar náð 71% af því.

Sánan er komin vel á veg.
Sánan er komin vel á veg.

Sigmar kallar sig gusumeistara enda fór hann í gusumeistaranám eftir að hafa stundað sánur um hríð og kynnt sér ýmsar hliðar þeirra.

Í gufunni verður unnið með hita, tónlist, ilm, hugleiðslu og öndun. Áætlað er að sánan verði tilbúinn í mars og gusurnar byrji strax í kjölfarið.

KATRÍN MEÐ NÁMSKEIÐ Í HR

0

Katrín Jakobsdóttir fyrrum forsætisráðherra heldur námskeið í fundarstjórn í Háskólanum í Reykjavík í mars. Sex tímar og kostar 62 þúsund á haus.

JOAN BAEZ (85)

0

Joan Baez æskuvinkona Bob Dylan og sálufélagi alla tíð er 85 ára í dag. Hér taka þau lagið fyrir 62 árum.