„Markmiðið er að byggja sánu og bjóða uppá heilsubætandi gusur, bæði fyrir líkama og sál. Sveita Sauna er staðsett í fallegri skógrækt með fallegt útsýni í 15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfoss,“ segir Sigmar Örn Aðalsteinsson sem safnar fyrir sánunni á Karolina Fund, setur markið á 8.000 evrur og hefur þegar náð 71% af því.

Sigmar kallar sig gusumeistara enda fór hann í gusumeistaranám eftir að hafa stundað sánur um hríð og kynnt sér ýmsar hliðar þeirra.
Í gufunni verður unnið með hita, tónlist, ilm, hugleiðslu og öndun. Áætlað er að sánan verði tilbúinn í mars og gusurnar byrji strax í kjölfarið.







