Home Blog Page 27

HEILT BRETTI AF TÆLENSKUM BJÓR Á HLEMMI

0

„Heilt bretti af Tælandi í flösku röltandi framhjá mér í morgunsárið. Það er að birta til,“ segir Ingvi Már rakari á Hárhorninu á Hlemmi sem lagði frá sér skærin um stund og fór út í glugga.

Það er Tómas Boonchang veitingamaður og eigandi hinna vinsælu Ban Thai og Nana Thai ofar í götunni sem stendur í þessum bjórflutningum frá heimalandi sínu – Singha heitir bjórinn.

Sjá tengda frétt.

NANNA Í 100 ÞÚSUND EINTÖKUM

0

Matreiðslubækur Nönnu Rögnvaldsdóttur eru á heimsmælikvarða, hlaupa á tugum og hafa selst í yfir 100.000 eintökum.

FORSETINN OPNAR SOFANDI RISA

0

Forseti Íslands opnar sýningu Kristjáns Maack ljósmyndara í Ljósmyndasafni Reykjavíkur laugardaginn 17. janúar. Heiða Björg borgarstjóri verður einnig á staðnum og býður forsetann og gesti velkomna. Sofandi risar heitir sýningin:

Sofandi risar fjalla um hina örlagaríku tíma sem við lifum á.
Í náttúrunni búa sofandi risar sem smátt og smátt eru að vakna til lífsins. Djúpt í iðrum náttúrunnar stendur tíminn kyrr svo árþúsundum saman og varðveitir þar tímann og kjarnann í náttúrunni.

Um þúsaldir geymist vatnið og súrefnið og allar öreindir landsins á hinum fullkomna stað, undir þungu fargi sjálfs síns til þess að varðveita upprunann. Í myrkrinu og kuldanum varðveitist kjarninn best, tíminn hefur stöðvast í milljónir ára og bíður þess sem verða vill. Massinn og fargið hefur áhrif á allt í kringum sig, nærir og kæfir allt umhverfið sitt með eiginleikum sínum.

Íslenskir jöklar eru að hverfa. Ef skyggnst er innst inn í kjarna jökuls þá má þar finna allt sem var, andrúmsloft, vatn, ryk, flóru, og allar hinar minnstu öreindir alheimsins.
Þetta er allt geymt í frystigeymslu náttúrunnar.

JODIE FOSTER ELSKAR HVAMMSVÍK

0

„In Iceland, I love: Hvammsvík,“ segir kvikmyndastjarnan Jodie Foster í Wall Street Journal.

JAMIE OLIVER HÆTTUR AÐ PANTA PIZZUR

0

Meistarakokkurinn Jamie Oliver er hættur að panta heimsendar pizzur eftir að hann smurði nokkrar brauðsneiðar með tilheyrandi og setti í airfryer:

„Þær reyndust svo góðar að ég trúði ekki að ég hefði gert þær,“ segir hann.

HENNÝ (74) – FYRSTI VANGADANSINN

0

Henný Hermanns sem kjörin var Miss Young International í Japan 1970 er 74 ára í dag. Í ævisögu hennar sem Margrét Blöndal skáði rifjar Henny upp fyrsta vangadansinn á balli í Breiðagerðisskóla þegar hún var tólf ára:

„Það tilheyrði að vanga á þessu balli. Og það lá mikil eftirvænting í loftinu. Við vissum að þetta var eitthvað sem tilheyrði. Þetta höfðu stóru krakkarnir gert árin á undan og nú var komið að okkur.“

Stóra spurningin var auðvitað: Hver vangar við hvern? Hver fær fyrsta vangadansinn? Ljósin voru dempuð og rólega lagið — þetta eina — fór að hljóma. Henny og dansfélaginn færð sig nær hvort öðru og Paul byrjaði að syngja: „These were bells on a hill“ og bæði tóku undir “till there was you“.

„Man ég hver hann var? Já, auðvitað man ég það. Hann heitir Eiríkur Jónsson og varð seinna frægur fjölmiðlamaður. Hann á fyrsta vangadansinn.“

DORRIT (76)

0

Dorrit Moussaieff fyrrum forsetafrú á Bessastöðum er afmælisbarn dagsins (76). Hún kom eins og storsmveipur inn í íslenskt samfélag og vann hug og hjarta heillar þjóðar með framgöngu í erfiðu hlutverki sem seint verður leikið eftir. Til hamingju!

NÁMSSTYRKUR ELLÝJAR KATRÍNAR – OPNAÐ FYRIR UMSÓKNIR

0

Nú er opið fyrir umsóknir um Námsstyrk Ellýjar Katrínar, árlegan námsstyrk sem veittur er til meistaranema í umhverfis- og loftslagsmálum.

Styrkurinn er veittur til að styðja við vinnslu meistararitgerðar eða meistaraverkefnis og er ætlað að efla þekkingu á málefninu til framtíðar.

Námsstyrkurinn er kenndur við Ellý Katrínu Guðmundsdóttur, lögfræðing og fyrrverandi borgarritara hjá Reykjavíkurborg, sem var frumkvöðull á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hún leiddi samþættingu samgöngu- og umhverfismála og sinnti alþjóðastarfi borga í loftslagsmálum og leiddi í því samhengi verkefni sem opnuðu nýjar víddir fyrir borgina í umhverfismálum. Í kjölfarið setti Reykjavíkurborg fram sín fyrstu markmið til þess að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.

Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2026 og verður úthlutun tilkynnt þann 15. september, á fæðingardegi Ellýjar Katrínar. Styrkurinn er að hámarki 500.000 krónur og í forgangi við úthlutun eru verkefni sem tengjast Reykjavíkurborg eða sveitarfélögum almennt.

BARNAVÍTAMÍN INNKALLAÐ

0

Heilsa ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum fæðubótarefnið Barnavít, vörumerki Guli miðinn: Ráðlagður daglegur neysluskammtur inniheldur of mikið af A-vítamíni.

GUNNAR SMÁRI (65)

0

Gunnar Smári Egilsson samfélagsstjarna er 65 ára í dag. Han fær óskalagið People Are Strange.