Home Blog Page 26

NÚVITUND GAGNSLAUS IÐJA ÁN PENINGA

0

„Ég hef gert heiðarlegar tilraunir til að stunda þá gagnslausu iðju að dvelja í núinu, aðallega undir leiðsögn Eckhart Tolle og Sam Harris. Engin fortíð, engin framtíð – bara núið,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Dagur Kári en það gengur nú svona og svona í núinu:

„Svo varð mér á að gúgla hvers virði þessir auðmenn andans eru í beinhörðum peningum og kemur í ljós að við erum að tala um $70 milljónir annars vegar $12 milljónir hins vegar. Alveg er ég viss um að mér gengi betur í þessari núvitundarviðleitni vitandi af slíkum innistæðum á bankabókinni.“

VALENTINO LÁTINN

0

Ítalski tískukóngurinn Valentino er látinn, 93 ára.

FYRRUM ÞINGMAÐUR HÆÐIST AÐ VEIKINDUM FYRRUM RÁÐHERRA

0

Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum alþingismaður hæðist á óvenju rætin hátt að veikindum Guðmundar Inga Kristinssonar fyrrum menntamálaráðherra á samfélagsmiðlum í dag:

„Á nýju ári hefur margt merkilegt og undarlegt gerst tengt stjórnmálum. Fyrrum menntamálaráðherra fór í hjartalokuaðgerð sem varð til þess að hann þurfti ekki að nota hækjur lengur eftir að hafa þurft að skakklappast með þær árum saman. Þetta mun vera mesta kraftaverk sögunnar síðan Jesús reisti Lazarus upp frá dauðum. Ég vildi gjarnan hitta þennan lækni og athuga hvort að hægt væri að fá náttúruna aftur með svona aðgerð.“

ONASSIS (120)

0

Fæðingardagur gríska skipakóngsins Onassis (1906-1975), hefði orðið 120 ára. Onassis, fæddur í Tyrklandi og hálfur Argentínumaður, hóf viðskiptaferill sinn þar með tóbakssölu sem blósmtraði svo í siðari heimssyrjöldinni að úr varð grískt skipafélag sem varð það stærsta í einkaeigu í heiminum. Byggði velgengni sína á olíuflutningum frá Arabaríkjum. Svo lét hann sig ekki muna um að giftast Jackie Kennedy forsetafrú Bandaríkjanna nokkrum misserum eftir að Kennedy forseti var myrtur í Dallas.

FYRRUM ÞINGKONU MISBOÐIÐ Í BÍLAKJALLARA

0
Halldóra Mogensen fyrrum þingkona og þingflokksformaður Pírata  lagði bílnum sínum í bílakjallara Grósku um daginn í tvær klukkustundir en var svo rukkuð um þrjár. Þá sendi hún tölvupóst til rekstraraðila til að fá útskýringar og fékk þetta svar:
„Lagning þín stóð yfir í 2:05 og innheimt er fyrir hverja byrjaða klukkustund.“
„Er ég ein um að finnast þetta gróft? Mega einkaaðilar bara haga þessum málum eins og þeim sýnist? Eru engar reglur til staðar sem tryggja vernd neytenda?“ spyr Halldóra – eins og hrópandinn í eyðimörkinni.

„ÞAÐ GLEÐUR MIG AÐ BLAÐAMENN SÉU ÁNÆGÐIR“

0
„Ég fékk spurningu frá frábærum blaðamanni í gær sem hljóðaði svo: – Ég skil ekki alveg af hverju þú ert svona harkalegur í garð BÍ sérstaklega,” segir fjölmiðlamaðurinn Þórhallur Gunnarsson sem gangnrýnt hefur ríkisstyrki fjölmiðlaráðherra sem renna að mestu til eigenda stærstu fjölmiðlanna:
„Blaðamannafélagið fagnar þessu útspili Loga Einarssonar og allir félagsmenn eru ánægðir samkvæmt formanni félagsins. Ég hef gagnrýnt þetta fyrirkomulag og tel það ekki styðja við blaðamenn heldur eigendur stórra fjölmiðla. Blaðamannafélagið hefur hins vegar leitt þessa baráttu og er sátt. Nú ætla ég að hætta að blanda mér frekar í mál blaðamanna og blaðamannafélagsins. Það gleður mig að blaðamenn séu ánægðir,“ segir Þórhallur og lætur þar við sitja.

SKRIPO Í JÓNSHÚSI

0

Guðjón Viðarsson og Kára Þór Arnarsson, listamennirnir á bak við sýninguna SKRIPO sem nú prýðir anddyri Íslenska sendiráðiðsins í Kaupmannahöfn, brugðu sér í Jónshús þar sem þessi mynd var tekin.

DOLLY PARTON (80)

0

Goðsögnin Dolly Parton er áttræð í dag. Hún hefur baðað sig í sviðsljósinu í rúma hálfa öld, selt 100 milljónir hljómplatna, hlotið 11 Grammy verðlaun og leikið í kvikmyndum við miklar vinsældir. Þá er hún slyng í viðskiptum; hefur rekið The Dollywood Company samhliða daglegum erli og allt gengur upp – ekki endilega milli 9 og 5…

TÍSKAN ENDURTEKUR SIG

0

Tískan er ekki bundinn við ákveðinn tíma þó það felist í nafninu. Tískan endurtekur sig í sífellu, fer í hringi eins lífið og landamærastríð manna. Það eru 50 ára á milli myndanna, kjóllinn kominn aftur – í tísku.

GUÐMUNDUR ANDRI MEÐ NÝJA PLÖTU

0
„Hér er ellefu laga plata sem ég hef verið að dunda mér við að taka upp af og til þetta síðasta ár,“ segir Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur:-
„Titillinn er fenginn úr ljóðinu hans Þorsteins Erlingssonar, „Þegar vetrar þokan grá“ og er stafsettur eins og Þorsteinn gerði, og mér finnst alltaf soldið falleg stafsetning, oft kennd við Laxness. Þetta er gítargutl og vísnaraul, lög og flestir textar eftir mig.“
Platan er bara á streymisveitum, til dæmis Youtube,Tidal og Spotify – hér.