Halldóra Mogensen fyrrum þingkona og þingflokksformaður Pírata lagði bílnum sínum í bílakjallara Grósku um daginn í tvær klukkustundir en var svo rukkuð um þrjár. Þá sendi hún tölvupóst til rekstraraðila til að fá útskýringar og fékk þetta svar:
–
„Lagning þín stóð yfir í 2:05 og innheimt er fyrir hverja byrjaða klukkustund.“
–
„Er ég ein um að finnast þetta gróft? Mega einkaaðilar bara haga þessum málum eins og þeim sýnist? Eru engar reglur til staðar sem tryggja vernd neytenda?“ spyr Halldóra – eins og hrópandinn í eyðimörkinni.







