HomeGreinarHANNES, HEILSAN OG HAMINGJAN

HANNES, HEILSAN OG HAMINGJAN

„Heilbrigðiskerfið íslenska er um margt gott, en mér finnst eitt vanta í það, raunverulega heilsuGÆSLU, og með því á ég við forvarnir, ekki aðeins tilraunir til að lækna sjúkdóma eða halda þeim niðri. Ég á við að afstýra, ekki aðeins bregðast við,“ segir Hannes Hólmsteinn í morgunhugleiðingu frá Rio de Janeiro

„Það er erfitt að fá almenna og reglubundna læknisskoðun á Íslandi, þegar ekkert virðist ama að. En til eru margir einkennalausir og því lævísir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, krabbamein í blöðruhálskirtli og hæg fylling kransæða. Ég leysi þetta verkefni með því að fara reglulega í almenna og yfirgripsmikla skoðun hjá heimilislækninum mínum í Rio de Janeiro og greiða fyrir blóðsýnatöku, ómskoðun og aðrar rannsóknir, en þetta er ekki á allra færi. Tryggingarnar íslensku eiga lögum samkvæmt að endurgreiða tvo þriðju af kostnaðinum, en eru tregar til þess og krefjast ótal vottorða um þörfina. Þörfina?

Faðir minn varð bráðkvaddur 63 ára, móðir mín lést úr krabbameini 74 ára, og ég er að verða 73 ára! Ég reyni að ganga út úr þessum augljósa áhættuhóp með því að ganga daglega í klukkustund eftir Copacabana ströndinni, en einnig með því að drekkja öllum sýklum í vínanda. Ég sagði alltaf nemendum mínum, að raða mætti lífsgæðunum svo, að mikilvægust væri góð heilsa, síðan þægilegir fjöskylduhagir og loks rúm fjárráð. Hamingjan fæst ekki keypt með peningum, en þeir gera óhamingjuna bærilegri.“

TENGDAR FRÉTTIR

FRESTAÐI SJÖTUGSAFMÆLINU UM ÞRJÁ MÁNUÐI EFTIR INNTÖKU Á NAD+

Lífsþyrstur íbúi í 101 Reykjavík, hugmyndaríkur og snjall, frestaði sjötugsafmæli sínu, sem átti að vera eftir nokkta daga, um þrjá mánuði, Ástæðan er inntaka...

DORRIT SLEIKIR SÓLINA Í SKUGGA SKILNAÐAR

Dorrit Moussaieff nýtur lífsins á grísku eyjunni Mykonos með vinum sínum í skugga skilnaðar við Ólaf Ragnar sem á meðan berst gegn yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu...

LAUGABÚÐ Á EYRARBAKKA TIL SÖLU

Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki...

NO PARKING

Þetta merki þýðir "Bannað að leggja" á öllum tungumálum, jafnvel esperanto. Ökumaður þessa ferðabíls kaus þó að leggja honum í lítilli þvergötu í miðbæ...

RÁÐHERRAHJÓN Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í KANADA

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem...

VIÐREISN AUGLÝSIR GUINNESS

"Ég er frjálslyndismegin í þessu," segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í auglýsingu frá Viðreisn á samfélagsmiðlum. Svona lítur auglýsingin út.

INGA SÆLAND ELDRI BORGARI – 67 ÁRA Í DAG

Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir. Inga er fædd árið 1959 á...

SMURSTÖÐVAR LEGGJA UPP LAUPANA VEGNA RAFBÍLA

Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það...

PENINGAR TIL SÖLU Í KÓPAVOGI

Hægt er að kaupa gamla, íslenska seðla í Antikbúðinni í Auðbrekku 4 í Kópavogi. Það er hins vegar ekki hægt að kaupa neitt fyrir...

CAFÉ SKEIFAN SEM VARÐ BÚLLAN

Svona leit Hamborgarabúllan í Geirsgötu út áður en Tommi á Búllunni settist þar að í apríl 2004. Þetta er Café Skeifan sem bauð upp á...

FYRRUM BÆJARSTJÓRI HAFNAR TILBOÐUM UM BÆJARSTJÓRASTÖRF

"Undanfarnar vikur hafa mér boðist mörg spennandi verkefni, þar á meðal bæjarstjórastöður og önnur ábyrgðarstörf," segir Valdimar Víðisson fyrrum bæjarstjóri Framsóknar í Hafnarfirði sem...

BÍLALEIGUBÍLAR 1963 – HÖFÐU STRAX VONT ORÐ Á SÉR

"Pabbi var oft á svona Bjöllu þegar hann kom í bæinn," segir Valdís Stefánsdóttir í tilefni af þessari frétt. "Eitt sinn vorum við að kaupa...

Sagt er...

Stærsta litla bæjarhátíð í heimi hefst á Reykhólum í næstu viku Reykhóladagar 2026 fara fram dagana 12.–16. ágúst og bjóða upp á fimm daga af...

Lag dagsins

Charlize Theron, áður fyrirsæta, efnileg ballerína þar til hné gaf sig og nú í hópi hæst launuðu leikkvenna heims, er afmælisbarn dagsins (51). Hún...