Fókus – félag áhugaljósmyndara tekur yfir sýningarrýmið SKOTIÐ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2026.
Á árinu verða settar upp sjö ólíkar sýningar sem 46 félagsmenn taka þátt í undir stjórn sýningarnefndar félagsins og nefnist sýningarröðin „Skotið í FÓKUS 2026“.
Þann 9. janúar kl. 16.00 opnar fyrsta sýningin og nefnist hún „Hreyfing“. Orðið „hreyfing“ má túlka í ljósmynd á mismunandi vegu, til dæmis með því að frysta hreyfingu í mynd, fylgja hreyfingu eftir með myndavélinni, eða taka myndir af ýmsum „hreyfingum“ samfélagsins, svo sem verkalýðshreyfingu eða mótmælahreyfingu.
Sýnendur eru:
Dagþór Haraldsson
Geir Gunnlaugsson
Ósk Ebenesersdóttir
Ólafur Magnús Håkansson
Sveinn Aðalsteinsson
Þorsteinn Friðriksson
Fókus er félag áhugaljósmyndara á höfuðborgarsvæðinu sem stofnað var árið 1999. Það er frábær vettvangur fyrir fólk sem vill þróa ljósmyndafærni sína og hæfileika.






