Home Blog Page 30

MOGGINN RUGLAST Á GÖTUM

0

Morgunblaðið birtir í dag stórar og fallega mynd úr miðbænum og myndastextinn er óður til Laugavegarins – hjarta borgarinnar. En myndin er ekki tekin á Laugavegi heldur á Skolavörðustíg.

The high streetVinnandi maður ber stiga sinn um öxl á Laugaveginum þótt kannski sjái þeir sem ókunnir eru í Reykjavík ekki í hendi sér að hér sé myndefnið þessi gamla rammíslenska og fornfræga verslunargata. Eina orðið sem finna má á íslensku á myndinni er „Reykjavík“ sem þó er að hálfu hulið af stiga hins vinnandi. Er ekki eitt einasta orð við Laugaveginn á íslensku lengur?
„Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?“ spurði Jónas Hallgrímsson í einu sinna þekktustu ljóða, Íslandi. Og hvað segir maðurinn með stigann um þessa þróun? Tekur hann eftir henni?“

DIANE KEATON (79)

0

Fæðingardagur Diane Keaton (1946-2025) sem lést fyrir þremur mánuðum. Hún hefði orðið 79 ára í dag. Minningin lifir.

HVAÐA TEGUND ER ÞESSI BÍLL?

0

„Þessi mynd er sennilega tekin 1935 – 40, og er af móðurbróður mínum, Einari J Skúlasyni, sem stofnaði og rak samnefnt fyrirtæki með innflutning og viðgerðir á reiknivélum og ritvélum í áratugi,“ segir Jóhann Örn Guðmundsson og bætir við:

„Það væri gaman ef einhver gæti sagt mér hvaða tegund bíllinn er.“

GUFA HAMLAÐI RAKSTRI Í STURTUKLEFA VESTURBÆJARLAUGAR

0

Fastagestir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið í sturtuklefa karla í Vesturbæjarlaug síðdegis í gær. Klefinn var fullur af gufu og sáu gestir vart handa sinna skil hvað þá að þeir gætu rakað sig fyrir framan spegil.

Flestir töldu að nýju gufuböðin handa veggjarins farin að smita út frá sér en baðvörðurinn taldi það af og frá:

„Þetta gerist þegar heitt vatn og kalt loft mætast,“ sagði hann en því var mótmælt af fastagestum sem sögðust aldrei hafa séð annað eins í 30 ár og hefðu þó mætt þarna daglega öll árin.

„Þá hlýtur loftræstikerfið að hafa gefið sig,“ sagði sturtuvörðurinn og fálmaði sig áfram við vinnu sína. Fóru gestir við svo búið illa rakaðir heim aldrei þessu vant.

GUNNAR ÞÓRÐARSON (81)

0

Gunnar Þórðarson, tónskáld í poppi, rokki og óperum, er afmælisbarn dagsins (81). Hér er hans fyrsta lag sem kom út á plötu, Fyrsti kossin 1964. Þá var hann nítján:

GEORGE MARTIN – 5. BÍTILLINN

0

Fæðingardagur George Martin (1926-2016) upptökustjóra og tónlistarmanns sem gaf Bítlunum þann sérstaka tón sem fleytti þeim til heimsfrægðar – 5. bítillinn var hann kallaður. Ferill hans í hljóðverinu spannaði 60 ár og hann var aðlaður af Bretadrottningu fyrir einstakt framlag sitt til tónlistar og dægurmenningar. Eftir það hét hann Sir George Martin.

ÁRAMÓTASKAUPIÐ 1967

0
„Mér varð hugsað til fyrsta áramótaskaups Sjónvarpsins sem varðveist hefur, að mér skilst, en það er frá gamlárskvöldi 1967 og það annað í röðinni,“ segir Þuríður Sigurðardóttir söngkona og myndlistarmaður:
„Skaupið þá var með afar ólíku yfirbragði því sem boðið var uppá í ár, allt mun minna í sniðum og grínið allt öðru vísi.
Ung og óreynd söngkona steig sín fyrstu skref í leik og söng í sjónvarpi og upptakan tók aðeins daginn með örfáum klippingum. Ég reikna með að einhverjir hafi gaman að rifja þetta upp.
Samfélagsmiðillin var bara einn á þessum tíma, Velvakandi í Morgunblaðinu og þar heyrðist rödd fólksins. Einhver hafði fyrir því að að skrifa og póstleggja bréf til blaðsins með umsögn og fór mildum höndum um táninginn og okkur öll, sem komu að Skaupinu.

NEVER A DULL DAY WITH JOHNNY (59)

0

Jón Gnarr alþingismaður og fyrrum borgarstjóri er 59 ára í dag. S.B. Blöndal bassaleikari og formaður borgarráðs í valdatíð afmælisbarnsins sendir kveðju:

„Til hamingju með daginn þinn kæri félagi Jón. Eins og sagt var í eina tíð: Never a dull day with Johnny.“

KING OF THE ROAD

0

Fæðingardagur Roger Miller (1936-1992) frá Fort Worth í Texas sem samdi og söng King Of The Road. Minning hans hvílir nú í Country Music Hall of Fame. Hann sló nýjan tón og takt í lagasmiðum sínum og textum sem markaðurinn þáði með þökkum.

ÁRAMÓTAHEIT FYRIR ALLA

0

Með nýjum styrk

skal ég strengi slá

og stirna lágnættið eldum

unz óskakraftur

minn endurrís

úr ösku ljóðs míns

og hjarta,

úr mistri og sorta

skín svanaflug

og sólin gistir

mig aftur

Snorri Hjartarson –  Úr Úlfdölum