Fæðingardagur Davy Jones (1945-2012), söngvarans síkáta í táningahljómsveitinni Monkees sem sló hressilega í gegn á sínum tíma. Síðar átti Davy góða spretti í söngleikjum á Brodway en lést fyrir aldur fram á heimili sínu í Florída eftir hjartaáfall 66 ára.
AFSKRIFUÐ HRYSSA Á LEIÐ Í PULSUVAGN
„Meri á sláturverði eða hæðsta boð. Fer annars í pulsuvagn, “ segir Sigríður Breiðfjörð Róbertsdóttir hestakona á Akranesi sem hefur gefist upp á hryssunni sinni, Lind frá Lundi:
„Ef einhvern langar að stofna ródeó væri hún tilvalin í það. Búin að fara á hana sirka tíu sinnum og hrekkir í hvert skipti. Þrisvar sinnum búin að ná mér af, dýralæknir búinn að skoða hana, tannlæknir búinn að skoða hana og finnst ekkert að. Hún byrjar að láta svona þegar tekið er í vinstri tauminn svo augljóslega eitthvað að en ég vill sjálf ekki eyða meiri tíma í hana.“
TÓMIR TANKAR Á GAMLÁRSDAG – BENSÍN LÆKKAR Á NÝÁRSDAG
DANSKUR BAKARI MEÐ GULAR TRUMP KÖKUR
The London Economic greinir frá því að danskur bakari selji gular kökur með andliti Trumps og þær sagðar heita Moron Cake. Sjálfur kallar danski bakarinn þær Kvaje kage og kosta 25 danskar krónur.
London Economic telur þetta framtak lið í baráttu Dana fyrir að halda Grænlandi – frá Trump.
HALLA KEYPTI OF STÓRAN SUNDBOL
Halla Gunnarsdóttir formaður VR keypti ér rándýran sundbol sem reyndist alltof stór á alla kanta. Segir hún að markmið sitt 2026 sé að stækka um 10 cm og 10 kg til að fjárfestingin fari ekki í súginn.
20 MÁNAÐA GÖMUL FRÉTT Á TOPPNUM UM JÓLIN – ÓSKILJANLEGT
Hvernig má það vera að frétt um pabba Laufeyjar stórstjörnu frá 17. mars í fyrra verði mest lesna fréttin á jólum 20 mánuðum síðar? Getur verið að gríðarlegur áhugi landsmanna á Laufeyju og tilheyrandi gúggl valdi þessu? Óskiljanlegt!
MARIANNE FAITHFULL (79)
Breska rokkstjarnan Marianne Faithfull, (1946-2025) hefði orðið 79 ára í dag en hún lést í janúar á þessu ári. Hún var kærasta Mick Jagger í æsku þeirra beggja og vinkona hinna Rollingana í Stones sem skópu feril feril hennar með laginu As Tears Go By. Eftir brokkótt gengi og löngu síðar kom svo platan Broken English þar sem The Ballad Of Lucy Jordan rís hæst:
BRIGITTE BARDOT LÁTIN
Franska goðsögnin og eitt mesta kyntákn allra tíma, Brigitte Bardot er látin, 91 árs. Líf hennar var viðburðaríkt, eiginmenn komu og fóru og barátta hennar fyrir dýravernd hafði afdrifarík áhrif á loðdýrarækt um heim allan – líka á Íslandi. Blessuð sé minning hennar.
ÞREKRAUN Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Þjóðleikhúsið frumsýndi Óresteiu í gærkvöldi og athygli vekur að sýningin er rúmlega fjögurra tíma löng eins og auglýst er:
–
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýningin hefst.
Sýningarlengd er fjórar klukkustundir og tuttugu mínútur. Tvö hlé.
Fyrsti þáttur: 1 klst. 45 mín.
Fyrra hlé: 20 mín.
Annar þáttur: 1 klst. 10 mín.
Seinna hlé: 10 mín.
Þriðji þáttur: 55 mín.

Drottningin Klítemnestra hefur engu gleymt. Þegar Agamemnon konungur snýr sigurreifur heim úr tíu ára herferð eru móttökurnar blóði drifnar.
Óresteia er nýtt og einstaklega kraftmikið leikverk eftir Benedict Andrews innblásið af sígildum þríleik Æskílosar. Verk Æskílosar hefur talað með máttugum hætti til mannkynsins, kynslóð eftir kynslóð, og efni þess á við okkur óþægilega brýnt erindi í dag.
HERA HILMARS (37)
Kvikmyndastjarnan Hera Hilmars, eða Hera Hilmar eins og hún heitir á alþjóðamarkaði, er afmælisbarn dagsins (37). Hún fær óskalag eftir föður sinn, Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóra, titillagið úr kvikmynd hans „Eins og skepnan deyr“.

