Morgunblaðið birtir í dag stórar og fallega mynd úr miðbænum og myndastextinn er óður til Laugavegarins – hjarta borgarinnar. En myndin er ekki tekin á Laugavegi heldur á Skolavörðustíg.
–
„The high street“ Vinnandi maður ber stiga sinn um öxl á Laugaveginum þótt kannski sjái þeir sem ókunnir eru í Reykjavík ekki í hendi sér að hér sé myndefnið þessi gamla rammíslenska og fornfræga verslunargata. Eina orðið sem finna má á íslensku á myndinni er „Reykjavík“ sem þó er að hálfu hulið af stiga hins vinnandi. Er ekki eitt einasta orð við Laugaveginn á íslensku lengur?
„Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?“ spurði Jónas Hallgrímsson í einu sinna þekktustu ljóða, Íslandi. Og hvað segir maðurinn með stigann um þessa þróun? Tekur hann eftir henni?“







