Í opnunarávarpi á aðalfundi alþjóðasamtaka höfundaréttarfélaga (CISAC) í síðustu viku, ræddi forseti samtakanna, Björn Ulvaeus úr ABBA, um gervigreind og framtíð mannlegrar sköpunar.
–
„Mannleg sköpun er ekki aðeins tjáning. Hún er vitnisburður um líf sem hefur verið lifað. Lagið er ekki bara afurð. Það er sönnunargagn.“
–
Sagði Björn að þótt gervigreindartól gætu hermt eftir mannlegri tjáningu, sé verðmæti mannlegrar sköpunar í grunninn bundið við lifaða reynslu, nokkuð sem tæknin getur ekki endurskapað.
–
Með því að beina sjónum að lagalegum og stefnumótandi umræðum um þjálfun gervigreindar, gagnsæi og vernd höfundaréttar, vísaði Björn til ákvörðunar breskra stjórnvalda um að falla frá fyrirhuguðum undanþágum frá höfundarétti vegna gervigreindar, eftir harða andstöðu frá forsvarsfólki hinna skapandi greina.
–
„Fólk eins og við hér í þessum sal hefur í heila öld haldið því fram — jafnt lagalega sem og í framkvæmd — að manneskjan á bak við tónverkið sé raunveruleg, auðkennanleg og eigi rétt á sanngjörnu endurgjaldi ,“ sagði Björn.
–
(Úr tilkynningu frá STEF – samtökum tón- og textahöfunda á Íslandi)





