Sýningin Bátar og býli verður opnuð í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka föstudaginn 19. júní kl. 18:00
Á sýningunni eru fagurlega smíðuð líkön af bátum og skipum ásamt áhugaverðum líkönum af byggingum. Sýningin er lítil glufa inn í heim módelsmíða þar sem handverk hagleiksfólks og fagmanna kemur saman og birtir okkur smækkaða mynd af manngerðri veröld.




