HomeGreinarKOKKALANDSLIÐIÐ KVEÐUR BJARNA

KOKKALANDSLIÐIÐ KVEÐUR BJARNA

„Það er með djúpri þökk og virðingu sem minnst er Bjarna Geirs Alfreðssonar, veitingamanns og frumkvöðuls, sem lést á dögunum,“ segir á heimasíðu Kokkalandsliðsins:

„Bjarni Geir fæddist í Reykjavík árið 1951 og helgaði líf sitt matargerð, þjónustu og mannlegum samskiptum. Hann var menntaður matreiðslumeistari, útskrifaður frá vetingastaðnum Óðali við Austurvöll, og var fyrsti neminn sem lauk þaðan námi árið 1972.

Eftir útskrift hóf hann fjölbreyttan og litríkan starfsferil á mörgum kunnuglegum stöðum, meðal annars á Naustinu, á Skrínunni við Skólavörðustíg, á Ask við Laugaveg, og hann stofnaði sjálfur veitingastaðina Grillborg og Versali í Kópavogi, Stélið í Tryggvagötu, Rauða sófann á Hlemmi og Árnesti í Ármúla. Verk hans báru keim af eldmóði, hugviti og trú á íslenska matarmenningu.

Frá árinu 1996 rak hann veitingasöluna Fljótt og Gott á BSÍ, sem varð fljótt eitt kunnasta kennileiti ferðamanna og Íslendinga á ferðinni. Bjarni tók við rekstrinum á tíma þegar veitingasalan var að dragast saman, en með einurð, vinnusemi og ástríðu fyrir góðum mat tókst honum á innan við tveimur árum að snúa rekstrinum við og byggja upp blómlega starfsemi. Hann lagði áherslu á íslenskar hefðir í einföldu og hlýju umhverfi, og sagði oft með brosi að hann vildi bjóða fólki upp á „kjamma og kók“  sem varð landsþekkt slagorð. 

Bjarni var einnig lengi viðlóðinn kaffistofu Samhjálpar, þar sem hann lagði sig fram um að styðja þá sem áttu um sárt að binda. Þar nýtti hann bæði fagþekkingu sína og hlýtt hjarta til að skapa hlýlegt umhverfi og mannsæmandi máltíðir fyrir gestina. Starf hans þar var ekki aðeins þjónusta heldur köllun, og endurspeglaði trú hans á virðingu, umhyggju og reisn allra manna.

TENGDAR FRÉTTIR

ÁR MEÐ HÁR

Nú er ár liðið frá því að athafnamaðurinn Einar Bárðarson flaug til Istanbúl ásamt félaga sínum þar sem þeir fóru í hárígræðslu sem heppnaðist...

MINNINGARGREIN UM DEKKJAVERKSTÆÐI

"Núna finnst mér eins og ég sé að skrifa minningargrein," segir Jórunn Sjöfn Guðlaugsdóttir ljósmyndari og vesturbæingur og hér er ástæðan: - "Fór með bílinn minn...

ARI Á BEKK Á BARÓNSSTÍG

Frambjóðendur í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík eru á  þönum um alla borg með kyningarfólki sem myndar þá í bak og fyrir. Hér situr Ari Edwald...

FIMMA SÉRA PÉTURS – AFMÆLISBOÐ

Pétur Þorsetinssin fyrrum prestur Óháða safnaðarins verður 71 árs 5. maí og fimman er honum hugleikin eins og fram kemur í afmælisboðskorti hans: "Þann fimmta...

ER STJÓRNARSKIPIÐ STRAND?

„Er stjórnarskipið strand?“ spyr Hrannar Björn Arnarsson framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og eiginmaður borgarstjóra en aðalfundur samtakanna ályktaði um stöðu mála. Þar er kallað eftir...

ÁSTFANGNAR Í 32 ÁR

Í dag er hátíðsdagur hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnhildi Sverrisdóttur. Ráðherrann smellti af lyftumynd í tilefni dagsins og segir: "Ég eignaðist kærustu fyrir...

FRIÐRIK HITTI SVÍAKONUNG Í SPORVAGNI Í GAUTABORG FYRIR 48 ÁRUM

"Þann 26. október 1978 þegar ég var í námi og starfi í Gautaborg tók ég sporvagn frá miðborg Gautaborgar upp til úthverfisins Angered til...

BRYNJAR ÓÁNÆGÐUR MEÐ NÝJA BÍLINN

"Nú er ég kominn á nýjan bíl," segir Brynjar Níelsson og er alls ekki ánægður með hann: - "Stöðugar athugasemdir um aksturslag mitt með háværu pípi,...

AFI BJARGAR – DAVÍÐ SCHEVING

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í væntanlegum borgarstjórnarkosningum er barnabarn athafnamannsins og iðnrekandans Davíðs Schevings Thorsteinssonar (1930-2022). Íslendingar geta þakkað Davíð Scheving fyrir bjórinn þegar...

GEGGJUN Í GUFUNESI

Þessi kaldranalega mynd birtist með frétt á vefnum grafarvogur.net sem fjölmiðlamaðurinn Jón G. Hauksson rekur. - "Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans í...

FLJÓTANDI GUFUBAÐ Í FJALLABYGGÐ

"Verkefnið okkar er að setja niður fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn í landi Brekkulands. Við teljum að þetta verði frábær viðbót við fjölbreytt úrval heilsu-...

LAUFEY OG JÚNÍA 54 ÁRA SAMTALS

Stórstjarnan Laufey Lin og tvíburasystir hennar, Júnía Lin, áttu afmæli síðastliðinn fimmtudag, 23. apríl - 27 ára. Samtals 54 ára eins og sést á...

Sagt er...

Þessi mynd prýddi forsíðu Stúdentablaðsins 1995. Sigurmyndin í Ljósmyndamaraþoni Stúdentaráðs - "Betra Ísland" eftir Hjördísi Geirdal.

Lag dagsins

Hjónin Jakob Frímann (73) og Birna Rún (53) eiga bæði afmæli í dag en slíkt er ekki algengt meðal hjóna. Þau fá óskalagið It...