Nú er ár liðið frá því að athafnamaðurinn Einar Bárðarson flaug til Istanbúl ásamt félaga sínum þar sem þeir fóru í hárígræðslu sem heppnaðist vel:
„Það hefur verið skemmtileg vegferða allt frá þeim degi. Skiluðum skömm karlmanna sem vilja laga á sér útlit til hins betra og höfum sent fjöldann allann af mönnum í sömu aðgerð sem allir koma glaðir heim,“ segir Einar í tilefni dagsins.



