HomeGreinarFLAKANDI FERSKT DRAMA OG SÚRNAÐIR DRAUMAR

FLAKANDI FERSKT DRAMA OG SÚRNAÐIR DRAUMAR

„Þá er komið að því: Bókin Allt sem við hefðum getað orðið er komin í verslanir! Það tók mig ekki nema tíu ár að skrifa hana,“ segir pistlahöfundurinn, fjölmiðlastjarnan og rithöfundurinn Sif Sigmarsdóttir í London:

„Ég ætla því að njóta umstangsins kringum jóalbókaflóðið ef það skyldu vera tíu ár í næstu bók. Ég hefði ekki getað ímyndað mér betri jólagjöf í ár en ummæli Hallgríms Helgasonar um bókina:

„Leggið frá ykkur börnin, símann og fjarstýringuna því hér er bók sem heimtar daginn! Flakandi ferskt spennudrama um skuggahlið listarinnar og súrnaða drauma.“

Takk, Hallgrímur.

Allt sem við hefðum getað orðið fjallar um tilraunir okkar til að halda deyjandi draumum okkar á lífi. Einu sinni átti ég mér þann draum að spila í hljómsveitinni Nirvana. Sá draumur lifði ekki af unglingsárin – en ég á þó ennþá þennan forláta stuttermabol um það sem ég hefði getað orðið … ef ég hefði einhvern tímann látið verða af því að læra á rafmagnsgítar.“

TENGDAR FRÉTTIR

ADHD LJÓÐ Á LAUGARDEGI

ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei að vinna með mig - ég þjáist rek mig á veggi - ofvirkur brotinn adh eitthvað ruglaður - lendi í ekki mér að kenna - lífið líður hjá orka kraftar hæfileikar - á móti ekki með - ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei á...

RAUÐSOKKUSTYTTA Í HLJÓMSKÁLAGARÐINN

Að tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra verður minnismerki um kvennabaráttuna reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og...

FÖLSUÐ HEYFILSMERKI Á LEIGUBÍLUM VIÐ LEIFSSTÖÐ

"Þegar við kom heim frá Spáni um daginn tókum við Hreyfils leigubíl með gula merkinu í framrúðunni," segir Örn Garðarsson, áður landsþekktur veitingamaður sem...

HAFNFIRSKIR ÖLDUNGAR VILJA ÚTSÝNI ÚR HEITU POTTUNUM

Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn til...

TRÚNAÐARBRESTURINN Í FLOKKI FÓLKSINS – INGA SÆLAND SETTI SON SINN Í STÖRF GUÐMUNDAR INGA

Nú er komið í ljós hver trúnaðarabresturinn í Flokki fólksins var þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins og ráðherra, sneri aftur eftir alvarlega hjartaaðgerð...

ÆRUVERND SÉRA FRIÐRIKS Í SELTJARNARNESKIRKJU

Félagið Æruvernd gengst fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19.apríl kl. 14 síðdegis undir heitinu „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.“ Á málþinginu verður fjallað...

RÁÐHERRARUGL

Það var ágætt hjá nýrri ríkisstjórn að kalla eftir hugmyndum um sparnaðaraðgerðir frá „sótsvörtum almúganum“ eins og einn aðstoðarmaður ráðherra kallar fólkið í landinu....

VIGDÍS (96)

Vigdís Finnbogadóttir, ástsælasti og virtasti forseti íslensku lýðveldissögunnar, er 96 ára í dag. Minning: Sur le pont d'Avignon heitir franskur alþýðusöngur sem Vigdís söng fyrir...

JAPANSKUR LÆKNIR VINNUR KRAFTAVERK Á LANDSPÍTALA

Ken Namikawa, yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítala, fjarlægði krabbamein í munnholi sjúklings með speglunartækni og var grein um tilfellið nýverið birt í læknatímaritinu ACG Case...

„TÖLUM VIÐ ERFIÐUSTU ATKVÆÐIN FYRST“

Jón Kristinn Snæhólm, landsþekktur íhaldsmaður frá unga aldri, er kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins og óháðra í Suðurnesjabæ auk þess sem hann skipar 16. sætið á lista...

STOLTUR FAÐIR FRAMBJÓÐANDA

"Þetta er hún dóttir mín. Hún er föðurbetrungur," segir Helgi Magnús Gunnarsson, landsþekktur fyrrum vararíkisaksóknari, en dóttir hans, Agnes Sólbjört Helgadóttir, skipar 7. sætið...

KJARTAN SKOÐAR TOYOTA MEÐ SYNI SÍNUM

Bílaáhugamaður sendir myndskeyti: - Var á sýningu hjá Toyota sem bauð upp á bíla, kókakóla, frostpinna, kleinur, rúnstykki og kjúklingaspjót. Þar sá ég þessa tvo og...

Sagt er...

Portretmynd af Brynhildi Guðjónsdóttur, leikkonu, leikstjóra, leikskáldi og fyrrum leikhússtjóra Borgarleikhússins, er til sölu í Góða hirðinum. Ekki verðmerkt.

Lag dagsins

Söngdísin Salka Sól er afmælisbarn dagsins (38). Hér er hún á dönskum vængjum ástarinnar. https://www.youtube.com/watch?v=2CwT2DqMyec&t=12s