HomeSagt erANDAGIFT ÚR ATLANTSHAFI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

ANDAGIFT ÚR ATLANTSHAFI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

Úrval verka frá spænska skartgripaverkstæðinu Joyas de la Raspa verða sýnd í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg á sýningu sem opnar laugardaginn 30. maí.
Verkstæðið var stofnað í Galesíu árið 1988 af Miguel Sánchez-Cantón og Virginia R. Lorenzo og hefur frá upphafi verið þekkt fyrir nútímaskartgripi innblásna af lífríki hafsins. Sardínur, kolkrabbar, skötur og marglyttur eru meðal myndefna í verkum þar sem handverk og tilraunir með fjölbreytt efni skapa einstaka heild.

Joyas de la Raspa hefur hlotið fjölda viðurkenninga á Spáni, meðal annars Landsverðlaun í handverki árið 2008 fyrir Abyssal-safnið, þar sem sjóslípað gler úr fjörum var notað sem lykilefni. Eftir fráfall Miguel Sánchez-Cantón árið 2020 hefur Virginia R. Lorenzo áfram leitt starfsemina og þróað myndheim sem sækir innblástur í Atlantshafið.

Sýningin markar jafnframt endurkomu verkstæðisins til Reykjavíkur en árið 2000 sýndi Joyas de la Raspa hjá Ófeigi sem hluti af Air-ring-sýningunni undir listrænni stjórn Matti Mattsson. Nú, rúmum tveimur áratugum síðar, snýr Virginia R. Lorenzo aftur með ný verk hjá Hildi Bolladóttur og Bolla Ófeigssyni.

TENGDAR FRÉTTIR

ÍSLAND ORÐIÐ DÝRASTA LAND Í HEIMI – TOPPAR SVISS

Ísland er orðið dýrasta land í heimi, hefur velt Sviss úr fyrsta sætinu á þar til gerðum lista þar sem Sviss hefur trónað ar...

18 ÁR FRÁ SUÐURLANDSSKJÁLFTANUM

Þann 29 maí 2008 klukkan 15:45 riðu tveir suðurlandsskjálftar samtímis yfir, 6,3 stig á Richter. Talið er að annar skjálftinn hafi hrint hinum af...

LISTAHÁTÍÐ Á LAUGARDAGINN

Laugardaginn 30. maí verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn. Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr...

MENNINGUNNI FÓRNAÐ TIL AÐ HALDA PENINGUNUM RÚLLANDI Í KÓPAVOGI

Á forsíðu Morgunblaðsins i gær er birt ljósmynd af heilum reit ibúðahúsa sem bíða þess að heimild fáist hjá bæjaryfirvöldum i Kópavogi, til að...

VIFTUR AÐ SELJAST UPP Í ELKO – ÓTTI VIÐ LÚSMÝ

Viftur eru við að seljast upp í Elko. Að sögn starfsmanna er það voróttinn - óttinn við lúsmý. Viftur þykja virka vel gegn óværunni og...

HUNDAR Í BÓNUS

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og skáld birtir ljóð sín reglulega á samfélagsmiðlum. Yfirleitt tímabærar athugasemdir um lífið. Hér er "Hundar í Bónus: - fór í Bónus í...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

Sagt er...

Venjulegt fólk á venjulegum degi í Austurstræti árið 1965. Myndin er úr heimildarmynd sem norska sjónvarpið gerði.

Lag dagsins

Hún er öflug og einlæg, Sólveig Anna Jónsdóttir í Eflingu er afmælisbarn dagsins (51). Hún vill réttlæti og valdið til fólksins eins og Lennon: https://www.youtube.com/watch?v=4Epue9X8bpc