Nú er komið í ljós hver trúnaðarabresturinn í Flokki fólksins var þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins og ráðherra, sneri aftur eftir alvarlega hjartaaðgerð – sem endaði með því að hann sagði sig úr flokknum og gekk sinn veg.
Honum var tilkynnt að sonur Ingu Sæland, formanns flokksins, hefði gegnt skyldum hans og störfum sem varaformaður á meðan á veikindum hans stóð en hlutverk varaformanns er helst að sjá um innra starf flokksins. Inga Sæland fannst ágætt að hafa það þannig áfram.
Öðru hafði Inga Sæland lofað Guðmundi Inga þegar hann veiktist, að hann myndi snúa aftur og taka við fyrri störfum að læknismeðferð lokinni – en þannig varð það ekki.
Sonur Ingu var kominn í ból hans.



