Home Blog Page 197

FORSÆTISRÁÐHERRA BÝÐUR UPP Á 8.000 BOLLAKÖKUR Á 17. JÚNÍ

0

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta og veglega dagskrá í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því að Ísland varð lýðveldi. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.

Morgundagskrá á Austurvelli

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11:10 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, flytur hátíðarræðu. Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni.

Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans. Lúðrasveitin Svanur leikur við athöfnina.

Skrúðganga 

Klukkan 13:00 leiða skátar glæsilega skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Í skrúðgöngunni kennir ýmissa grasa og má búast við að furðuverur muni láta sjá sig í göngunni, sirkuslistafólk leikur listir sínar og Lúðrasveit verkalýðsins leikur undir. Skemmtidagskrá verður einnig á Klambratúni.

Í Hljómskálagarðinum verður fjölbreytt dagskrá fyrir öll og ætti engum að leiðast, dans, sirkus og hoppukastalar. Hljómsveitin Celebs, Páll Óskar, Teitur Magnússon og Una Torfa ásamt hljómsveit verða á stóra sviðinu í Hljómskálagarðinum. Á Klambratúni verður boðið upp danssýningu frá Dans Brynju Péturs, Sirkus Ananas bregður á leik fyrir yngstu börnin, matarvagnar og DJ Fusion Groove sér um að halda uppi stemningunni. Harmonikufélag Reykjavíkur verður svo með alvöru ball í Ráðhúsi Reykjavíkur. Dagskrá lýkur klukkan 17:00.

Kórsöngur og 8000 bollakökur

Á Austurvelli verður boðið upp á sönghátíð þar sem 6 kórar flytja sönglög frá klukkan 13:00-16:00. Á sama tíma geta gestir og gangandi gætt sér á 8000 lýðveldisbollakökum og kaffi, á Parliament Hotel, í boði forsætisráðuneytisins og Reykjavíkurborgar

FORSETI ALÞINGIS (56)

0

Birgir Ármannsson forseti Alþingis er afmælisbarn dagsins (56). Birgir er kannski ekki maður margra orða og fær því óskalagið Silence is Golden:

ALBÍNÓI Í ANDAHÓPNUM Á REYKJAVÍKURTJÖRN

0

Það var eins og endurnar á Tjörninni yrðu hissa þegar á tjarnarbakkanum birtust alhvít önd – albínói. Hún skimaði yfir vatnsyfirborðið líkt og hún væri að ákveða hvort ætti að hætta sér út í. Kannski stendur hún þar enn og hugsar málið.

Í fjarlægð virtist þetta vera lítill svanur en þetta var önd. Ætli sé hægt að gefa henni brauð?

FISKIKÓNGURINN KAUPIR SMELLBEITUR

0

Fiskikóngurinn Kristján Berg virðast hafa fjárfest í nýrri tegund af beitu á vefnum hjá Mannlífi – smellbeitum:

„Fór og hitti meistara allra fyrirsagna í gær. Sjálfan smellbeitukónginn Reynir Traustason. Núna eiga eftir að koma hressilegar smellbeitur næstu daga sem fá ykkur til þess að smella og lesa um Fiskikónginn.“

ÞVOTTAPLÖNUM BENSÍNSTÖÐVA BREYTT Í RAFHLEÐSLUSTÖÐVAR

0

Olíufélögin láta ekki sitt eftir liggja við að hámarka arðsemi sína með skerðingu á þjónustu sem áður þótti sjálfsögð. Nú eru þvottaplönin að víkja fyrir rafhleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Gamla þvottaplanið á frægri bensínstöð á Dunhaga, sem eitt sinn hét Shell en heitir nú Orkan, hefur vikið fyrir rafmagninu og slík verða örlög annarra þvottaplana ef að líkum lætur.

Sjá tengda frétt un þjónustuskerðingu bensínstöða.

ÆVINTÝRI Á GÖNGUFÖR MEÐ PÉTRI ARKITEKT OG FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS

0

Það er gaman ganga með Pétri H. Ármannssyni arkitekt og fararstjóra hjá Ferðafélagi Íslands til margra ára um borgarlandið því fáir ef nokkrir þekkja betur eðli og inntak húsanna en hann.

Kannski má orða það þannig að Pétur bendi á það sem allir sjá, en fæstir taka eftir. Sjálfur er Pétur þeirrar náttúru að hann les ekki bara húsin fyrir okkur hin sem erum ekki jafnlæs á byggingar, hann er líka vel lesinn í sögunni og vitnar oft í skáldin í ferðum sínum. Hann hefur enda leitt fólk í fótspor Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness, bæði í borginni og í nágrenni Gljúfrasteins auk þess að ganga um sögusvið bóka á Álftanesi. En þekktastur er Pétur fyrir borgargöngurnar hjá Ferðafélagi Íslands sem tengjast allar skipulagi, sögu, mannlífi og byggingum.

„Hús og önnur mannvirki segja ákveðna sögu og það gefur lífinu gildi að þekkja þá þætti sem mótað hafa okkar nánasta umhverfi,“ segir Pétur þegar vikið er að mikilvægi bygginganna í borginni. Og hann vitnar strax í Ofvitann eftir Þórberg Þórðarson sem skrifaði listilega um sjálfan sig og samferðarfólk sitt í Reykjavík á fyrstu áratugum 20. aldar.

„Í Ofvitanum talar Þórbergur um húsin sem bókfell aldanna,“ segir Pétur og bætir svo við að oft sé vitnað til þessara orða Þórbergs : „Allir Íslendingar kunna að lesa bækur. En hversu margir kunna að lesa hús? Það er meiri íþrótt að kunna að lesa hús, en að geta lesið bækur. Húsið er hugsun, sem hefur hæð, lengd og breidd. Bókin er vöntun á hugsun sem aðeins hefur lengd. Húsið er sannleikurinn um líf kynslóðanna. Bókin er lygin um líf þeirra.

„Menn búa í húsum, hús búa í mönnum og hús og menn farast hjá,“ orti skáldið Sigfús Daðason.

Af þessum línum Sigfúsar má auðveldlega ráða að húsin móta líf okkar sem búum í þeim ogmeð þeim og nákvæmlega þannig orðar Pétur það sjálfur: „Við verðum að lifa með húsunum hvort sem okkur líkar betur eða vel – við höfum ekkert val.“

Þegar gengið er með Pétri í þéttbýlinu – á malbikinu eins og stundum er sagt – verður fólk þess fljótt áskynja að hann er með mikla þekkingu á sviði byggingarlistar og skipulagssögu og flestar ferðir hans taka mið af því. Það kom því fáum á óvart þegar Pétur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir tveimur árum fyrir miðlun þekkingar á sögu byggingarlistar á Íslandi og sömuleiðis fyrir rannsóknir á því sviði. Þeirrar miðlunar njóta öll þau sem ganga með honum í ferðum Ferðafélags Íslands um borgina. Pétur segir brýnt fyrir fólk að vera læst á umhverfi sitt – þar skipti þekking á undirstöðuatriðum byggingarlistar máli.

„Umfjöllun á sviði byggingarlistar og skipulagssögu má þó ekki vera of sértæk eða fræðileg í gönguferðum ef hún á að ná eyrum þátttakenda með ólíkan bakgrunn. Íslendingar eru sagnaþjóð og því hefur mér reynst vel að flétta inn í leiðsögnina frásagnir af fólki og viðburðum tengdum þeim stöðum sem skoðaðir eru á göngunni, jafnframt því að fjalla um hús og skipulag. Stundum gerist það að þátttakendur í göngunni uppgötva nánasta umhverfi sitt í nýju ljósi og þá er tilganginum náð.“

Þegar Pétur er spurður um áhrif húsanna á okkur sem ferðumst um þessa borg í bíl, gangandi, hjólandi eða á rafskútum eins og nú er móðins, þá svarar hann að bragði að húsin séu einfaldlega til staðar og séu okkur nauðsynleg, þau tryggi okkur öryggi og skjól. Hönnun þeirra, útlit og viðmót hafi líka áhrif á vellíðan okkar, meðvitað og ómeðvitað. „Guðjón Samúelsson og fleiri menntamenn af aldamótakynslóð trúðu því að vel skipulagðar borgir og falleg hús hefðu mannbætandi áhrif jafnt fyrir andlega og líkamlega vellíðan fólks og því væri borgarskipulag mikilvægt lýðheilsumál.“

Pétur er vel að sér um byggingarnar sem Guðjón Samúelsson hannaði en þær blasa víða við í Reykjavík og reyndar um land allt. Fyrir bók sem Pétur reit um Guðjón hlaut hann viðurkenningu Hagþenkis en Hið íslenska bókmenntafélag gaf út það merka rit. Pétur hlaut jafnframt tilnefningu til hinna eftirsóknarverðu Íslensku bókmenntaverðlauna fyrir sama riten slíkar tilnefningar hefur Pétur reyndar hlotið í tvígang.

Ferðafélag Íslands fagnar brátt 100 ára afmæli sínu:

Pétur segist fyrst hafa farið í sumarleyfisferðir með Ferðafélagi Íslands á síðasta áratugi 20. aldar en hann hafði áður farið í styttri göngur á fell og hæðir í nágrenni Reykjavíkur.

„Ég komst snemma í kynni við Guðmund heitinn Hallvarðsson fararstjóra,“ segir Pétur og með þeim orðum snertir hann þráð í þeim sem þetta ritar. Við eigum það nefnilega sameiginlegt við Pétur að hafa átt fyrstu löngu göngurnar okkar með Ferðafélagi Íslands með Guðmundi sem var ættaður frá Hlöðuvík á Hornströndum. „Hann var brautryðjandi í því að fara með hópa á svæðið norðan við Ísafjarðardjúp. Næstu árin fór ég í ógleymanlegar ferðir um þær slóðir undir traustri leiðsögn Guðmundar. Það vareinmitt Guðmundur sem bað mig upphaflega um að vera með leiðsögn í árlegum janúargöngum um höfuðborgarsvæðið, fyrst á vegum Hornstrandafara og síðar sem hluti af dagskrá Ferðafélagsins. Eftir Hornstrandir bættust aðrir staðir við: Þjórsárver, Kjalvegur hinn forni og Kerlingarfjöll, Jarlhettuslóðir, Öskjuvegur, Lónsöræfi, Rauðisandur, Látrabjarg oguppland Skaftártungna, svo nokkur dæmi séu nefnd. Í öllum þessum ferðum nutum við leiðsagnar farastjóra á heimsmælikvarða sem í öllum tilvikum voru sérfróðir um það landssvæði sem leiðin lá um. Bestu ferðalögin eru þau þegar fræðsla um sögu staða og náttúru landsins helst í hendur við útivist og hreyfingu. Þetta tvennt verður ekki aðskilið að mínu mati. Í þessum efnum hefur vönduð fararstjórn skapað Ferðafélagi Íslands mikilvæga sérstöðu.“

DROTTNINGARMAÐURINN (103)

0

Filipus heitinn drottningamaður í Bretlandi (1921-2021) hefði orðið 103 ára í dag. Hann var af dönskum og grískum konungsættum, fæddur á eyjunni Korfu í Grikklandi. Leiðir hans og Elísabetar Bretadrottningar lágu fyrst saman 1934 og þau giftu sig 13 árum síðar, 1947. Hann fær óskalag yfir móðuna miklu með Queen:

FYLLYBYTTUKARFAN Í ISTANBÚL

0

„The Drunk Basket“ kölluðu þir þetta í Istanbúl um 1960 – karfa sem starfsmaður síðdegisbarsins notaði til að bera gesti heim sem ekki gátu gengið eða ratað heim til sín eftir svallið.

NAKTIR Á HJÓLUM TIL BJARGAR HEIMINUM

0

London var undirlögð í gær vegna 20 ára afmælis „The World Ride“, sem í ár var haldið í London. Þar hjólar fólk alsnakið um götur heimsborga til að mótmæla óheyrilegri olíunotkun, bíladellu, hvetur til eflingar samfélagsvitundar og síðast en ekki síst: Fagna frelsi líkamans hvort sem hann er klæddur eða nakinn.

FRIÐRIK MEÐ AFMÆLISVEISLU Á MÓNAKÓ CASINO CLUB

0

Friðrik Indriðason blaðamaður og lífskúnstner hélt upp á 67 ára afmæli sitt á Mónakó Casino Club á Laugavegi skömmu eftir hádegi í gær. Þar með stimplaði afmælisbarnið sig inn sem eldri borgari og ánægður með óvæntan árangur.

Vel var veitt, smörrebröd að dönskum sið, snafsar, bjór og hvítt og rautt og allt kallaðist þetta vel á við laugardagshádegið sem leið fram hjá með stefnuna á síðdegið.

Friðrik er með gott auga fyrir tíðarandanum og les þjóðfélagið vel eins og hann á kyn til, sonur Indriða G. (79 af stöðinni) og bróðir Arnaldar metsöluhöfundar.

Mónakó Casino Club á Laugavegi var staðurinn til að vera á í hádeginu í gær. Gaman saman!