Gústaf Níelsson, landsþekktur hægrimaður og eldri bróðir Brynjars Níelssonar, er orðinn svo fullorðinn að fátt kemur honum lengur á óvart og klumsa verður hann sjaldan – segir hann sjálfur og heldur svo áfram:
–
„En ekkert er nýtt undir sólinni. Margir hafa haft horn í síðu ljómandi góðrar myndar af Snorra Mássyni og syni hans, er Snorri fagnaði kjöri til varaformanns Miðflokksins með þann stutta í faðmi sér og fundið að birtingu myndarinnar. Mér þykir myndin hæfa tilefninu vel. Drengurinn fagnar af einlægni og gerir sér grein fyrir aðstæðunum. Hann lyftir höndum í fögnuði með salnum; hann veit að faðir hans er sverð hans og skjöldur og honum er fagnað af fjöldanum.
–
Þessi mynd lýsir fölskvalausri gleði og er mynd ársins að mínu mati og kann jafnvel að rata í sögubækurnar síðar og leitt að myndin skuli hafa orðið fólki tilefni til að pönkast á Snorra.
Er ekki rétt að við lyftum umræðunni á aðeins hærra plan?“






