Loksins nýjar smásögur eftir Óskar Magnússon rithöfund, lögfræðing og bónda í Fljótshlíð. Vinsamlega réttið úr sætisbökunum heitir hún, tíu sögur úr öllum áttum. Fyrri bækur Óskars hafa fengið frábæra dóma, einkum á betri dekkjaverkstæðum.
Útgáfuhóf í Bókakaffinu Ármúla 42 fimmtudaginn 20. nóv. kl. 17-19. Aðrir höfundar lesa líka: Gunnhildur Þórðardóttir, Kristján Einarsson og Gunnar J. Straumland.
„Komið og takið þátt í að móta framtíðina,“ segir Óskar.







