Markús Þór Andrésson hefur verið ráðinn safnstjóri Listasafns Reykjavíkur en hann hefur starfað sem deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá safninu frá árinu 2017. Markús Þór er með MA gráðu í sýningarstjórn frá Bard Center for Curatorial Studies í Bandaríkjunum og BA próf í myndlist frá Listháskóla Íslands. Alls bárust 7 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Niðurstaða ráðningarnefndar, sem í sátu Steinþór Einarsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, Auður Jörundsdóttir forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar og Hulda Stefánsdóttir myndlistarmaður og aðstoðarrektor rannsókna við Listaháskóla Íslands, og ráðgjafa Vinnvinn ráðninga sem sá um ráðningarferilinn, var að Markús Þór Andrésson mæti afar vel kröfum Reykjavíkurborgar um staðgóða þekkingu á sviði safnsins, leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að leiða þetta stærsta listasafn landsins áfram á farsælli braut.
Ráðningin er til fimm ára með möguleika á fimm ára endurráðningu.









