„Vegasjoppur eru því miður að verða hver öðrum líkar – en á því eru sem betur fer undantekningar,“ segir Logi Einarsson menningarmálaráðherra sem stoppaði í Þrastarlundi í Grímsnesi og fékk kúltúrsjokk:
–
„Það var ánægjulegt að koma við í Þrastarlundi og sjá fína íslenska myndlist. Í matsalnum voru málverk eftir Gunnlaug Blöndal og teikning eftir Kristján Davíðsson.
–
En það sem gladdi augað allra mest var að í sjoppunni, yfir Emmes ís kælinum, var frábær teikning af Ragnari í Smára eftir Kjarval.
–
Svona eiga vegasjoppur að vera!“







