
Þórólfur Árnason fyrrum borgarstjóri í Reykjavík og forstjóri Samgöngustofu veit hvað klukkan slær þegar miðborgin og samgöngur eru annars vegar: Hann hjólar um miðbæinn með hundinn bundinn við bögglaberann. Það hlýtur að mega.
„Það frýs ekki úr þessu, nú kemur sumarið,“ sagði Þórólfur á síðasta vetrardegi og hjólaði rólega af stað í stuttbuxum með hundinn í bandi.