Demantsskreyttur gullhringur sem Frans páfi bar alla embættistíð sína á hægri baugfingri verður brotinn og kraminn með sérstakri sleggju í Vatíkaninu áður en páfinn verður jarðsettur. Páfar fá svona hring eftir kjör og við andlát þeirra er sleggjan látin vaða á þá.
Þykir mörgum þetta undarlegt þar sem hringurinn er metinn á 520.000 dollara og væri enn dýrari í sölu vegna tengsla páfa við hann. En með hringinn á ekki að braska og því er þetta gert – við hátíðlega athöfn.