HomeSagt erHLYNUR TIL CANNES MEÐ ÁSTINA SEM EFTIR ER

HLYNUR TIL CANNES MEÐ ÁSTINA SEM EFTIR ER

Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er, verður heimsfrumsýnd í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2025. Myndin verður sýnd í Cannes Premiere-flokki hátíðarinnar, fyrst íslenskra mynda. Hátíðin fer fram í 78. sinn dagana 13. – 24. maí.

Þetta er í annað sinn sem verk eftir Hlyn er valið í aðaldagskrá hátíðarinnar í Cannes. Árið 2022 tók mynd hans Volaða Land þátt í Un Certain Regard og vann síðar til fjölda verðlauna. Myndin var framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2024 og náði inn á stuttlista akademíunnar í flokki erlendra kvikmynda. Hlynur heimsfrumsýndi einnig kvikmyndina Hvítan, hvítan dag í Semaine de la Critique í Cannes 2019.

Svipmynd úr kvikmyndinni Ástin sem er.

Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra.

TENGDAR FRÉTTIR

FIMMA SÉRA PÉTURS – AFMÆLISBOÐ

Pétur Þorsetinssin fyrrum prestur Óháða safnaðarins verður 71 árs 5. maí og fimman er honum hugleikin eins og fram kemur í afmælisboðskorti hans: "Þann fimmta...

ER STJÓRNARSKIPIÐ STRAND?

„Er stjórnarskipið strand?“ spyr Hrannar Björn Arnarsson framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og eiginmaður borgarstjóra en aðalfundur samtakanna ályktaði um stöðu mála. Þar er kallað eftir...

ÁSTFANGNAR Í 32 ÁR

Í dag er hátíðsdagur hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnhildi Sverrisdóttur. Ráðherrann smellti af lyftumynd í tilefni dagsins og segir: "Ég eignaðist kærustu fyrir...

FRIÐRIK HITTI SVÍAKONUNG Í SPORVAGNI Í GAUTABORG FYRIR 48 ÁRUM

"Þann 26. október 1978 þegar ég var í námi og starfi í Gautaborg tók ég sporvagn frá miðborg Gautaborgar upp til úthverfisins Angered til...

BRYNJAR ÓÁNÆGÐUR MEÐ NÝJA BÍLINN

"Nú er ég kominn á nýjan bíl," segir Brynjar Níelsson og er alls ekki ánægður með hann: - "Stöðugar athugasemdir um aksturslag mitt með háværu pípi,...

AFI BJARGAR – DAVÍÐ SCHEVING

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í væntanlegum borgarstjórnarkosningum er barnabarn athafnamannsins og iðnrekandans Davíðs Schevings Thorsteinssonar (1930-2022). Íslendingar geta þakkað Davíð Scheving fyrir bjórinn þegar...

GEGGJUN Í GUFUNESI

Þessi kaldranalega mynd birtist með frétt á vefnum grafarvogur.net sem fjölmiðlamaðurinn Jón G. Hauksson rekur. - "Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans í...

FLJÓTANDI GUFUBAÐ Í FJALLABYGGÐ

"Verkefnið okkar er að setja niður fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn í landi Brekkulands. Við teljum að þetta verði frábær viðbót við fjölbreytt úrval heilsu-...

LAUFEY OG JÚNÍA 54 ÁRA SAMTALS

Stórstjarnan Laufey Lin og tvíburasystir hennar, Júnía Lin, áttu afmæli síðastliðinn fimmtudag, 23. apríl - 27 ára. Samtals 54 ára eins og sést á...

„ÁFRAMHALDANDI STERK STAÐA REYKJAVÍKURBORGAR“

Ársreikningur Reykjavíkurborgar lagður fram. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars: - Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar ...rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um 8 milljarða króna...

BUBBABÚÐ Á NETINU

Bubbi Morthens hefur opnað vefverslun í tilefni af afmælistónleikum sínum í Laugardalshöll í júní þegar hann verðir sjötugur. Vefverslun Bubba byður upp á allskyns sérmerktan...

AUÐUR JÓNS SRIFAR ÆVISÖGU INGIBJARGAR SÓLRÚNAR

Auður Jónsdóttir rithöfundur vinnur nú að ritun ævisögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum untanríkisráðherra, borgarstjóra og formanns Samfylkingarinnar. Verkið er komið á veg en löng...

Sagt er...

Á Matkránni í Hveragerði, frænku Jómfrúarinnar í Lækjargötu, kalla þjónarnir pipar og salt staukana Pétur og Stefán. Skemmtilegir þjónar.

Lag dagsins

Hún hefur borið eins og gull af eiri í borgarstjórn, afmælisbarn dagsins, Sunna Magdalena (34). Hagar sér og talar á hreinskiptari hátt en aðrir...