Húsmóðir í Vesturbænum keypti eggjabakka frá Stjörnueggjum, merkt lausagönguhænum, og varð furðu lostin þegar hún opnaði eggjabakkann; tvö eggjanna voru líkt og hömruð með gúmmíhamri en þó án þess að brotna.
Um var að ræða 12 eggja bakka þar sem öll önnur egg voru eðileg og hafa þau verið steikt. Skrýtnu eggin tvö eru geymd í ísskáp þar til annað kemur í ljós.