HomeGreinarLISTAHÁTÍÐ Á LAUGARDAGINN

LISTAHÁTÍÐ Á LAUGARDAGINN

Laugardaginn 30. maí verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn.

Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr nokkrum viðburðum hátíðarinnar, ávörp og léttar veitingar. Samhliða verður yfirlitssýning á verkum Karin Sander opnuð. Þar á eftir leiða Skólahljómsveitir Reykjavíkur borgarbúa að Hörputorgi þar sem þær sameinast í eina risa sveit, með hátt í 600 ungmennum, og frumflytja tónverkið Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson. Í kjölfarið verður loftfimleikaverkið The Air Between Us sýnt á Hörputorgi.

Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar, áttundu sinfóníu Mahlers, á tónleikum í Eldborg kl 17 og á sama tíma kynnir Fischersund ilmheim hátíðarinnar í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Sýningar James Merry og Bjarkar Guðmundsdóttur opna í Listasafni Íslands og svo er svo er tilvalið að enda daginn í opnunarpartýi Klúbbs Listahátíðar í Iðnó á danssýningunni Move with Pride.

TENGDAR FRÉTTIR

ÍSLAND ORÐIÐ DÝRASTA LAND Í HEIMI – TOPPAR SVISS

Ísland er orðið dýrasta land í heimi, hefur velt Sviss úr fyrsta sætinu á þar til gerðum lista þar sem Sviss hefur trónað ar...

18 ÁR FRÁ SUÐURLANDSSKJÁLFTANUM

Þann 29 maí 2008 klukkan 15:45 riðu tveir suðurlandsskjálftar samtímis yfir, 6,3 stig á Richter. Talið er að annar skjálftinn hafi hrint hinum af...

MENNINGUNNI FÓRNAÐ TIL AÐ HALDA PENINGUNUM RÚLLANDI Í KÓPAVOGI

Á forsíðu Morgunblaðsins i gær er birt ljósmynd af heilum reit ibúðahúsa sem bíða þess að heimild fáist hjá bæjaryfirvöldum i Kópavogi, til að...

VIFTUR AÐ SELJAST UPP Í ELKO – ÓTTI VIÐ LÚSMÝ

Viftur eru við að seljast upp í Elko. Að sögn starfsmanna er það voróttinn - óttinn við lúsmý. Viftur þykja virka vel gegn óværunni og...

HUNDAR Í BÓNUS

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og skáld birtir ljóð sín reglulega á samfélagsmiðlum. Yfirleitt tímabærar athugasemdir um lífið. Hér er "Hundar í Bónus: - fór í Bónus í...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

GERVIGREINDIN LITAR GAMLAR LJÓSMYNDIR

Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni;...

Sagt er...

Venjulegt fólk á venjulegum degi í Austurstræti árið 1965. Myndin er úr heimildarmynd sem norska sjónvarpið gerði.

Lag dagsins

Hún er öflug og einlæg, Sólveig Anna Jónsdóttir í Eflingu er afmælisbarn dagsins (51). Hún vill réttlæti og valdið til fólksins eins og Lennon: https://www.youtube.com/watch?v=4Epue9X8bpc