Viftur eru við að seljast upp í Elko. Að sögn starfsmanna er það voróttinn – óttinn við lúsmý.
Viftur þykja virka vel gegn óværunni og þurfa þá helst að vera stórar. Á dögunum voru aðeins litlar eftir í Elko.
Lúsmý tók sér fyrst bólfestu í Kjósinni fyrir ekki svo löngu og breiddi úr sér um uppsveittir Árnessýslu sumarbústaðafólki til ama og óþæginda. Nú telja margir íbúar í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafavogi að þeir verði ef til vill næstir – og flykkjast í Elko að tryggja sér almennilega viftu.
„Ný sending væntanlega,“ segja starfsmenn.




