Kaffitár í Kringlunni heyrir sögunni til í lok þessa mánaðar. Eigendur hafa ákveðið að loka þar 31. maí svo og öðru kaffihúsi sem verið hefur í Háskólanum í Reykjavík.
Í Kaffitári í Kringlunni verða allar vörur á afslætti út maí. Þeir sem eiga fyrirfram greidd kaffikort eða gjafakort er bent á að að nú fari hver að verða síðastur að nota þau.





