
„Danska konan og íslenska konan!“ segir Stefán Halldórsson, fyrrum blaðamaður, félagsfræðingur, og rekstrarhagfræðingur sem lengi starfaði á fjármálamarkaði, stoltur og má vera það:
„Ásta Björg, dóttir okkar Lilju, og Trine Dyrholm ræddu um sjónvarpsþáttaröðina Danska konan í Aftenshowet á dönsku sjónvarpsstöðinni DR1 í gærkvöldi. Ásta Björg er iðulega fengin til að ræða um íslensk málefni í sjónvarpi og útvarpi í Kaupmannahöfn þar sem hún hefur búið í yfir 30 ár, enda er hún vel tengd við Ísland vegna starfa sinna í Norður-Atlantsbryggjunni, menningarsetrinu sem er samstarfsverkefni Íslands, Færeyja, Grænlands og Danmerkur.“




