Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn til að auka birtu og skapa einstakt útsýni. Við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar lagði Samfylkingin til aukið fjármagn svo hægt yrði að flýta framkvæmdum við útisvæðið en tillagan var felld.



