Enski leikarinn Sean Bean er afmælisbarn dagsins (67). Honum hefur verið lýst sem feimnum manni og fyrir bragðið manni fárra orða. En í Bond-myndinni Golden Eye lék hann sér að því að sýna á sér aðra hlið sem skúrkurinn í myndinni, merktur 006, og var þar næstum búið að ganga frá Bond og veröldinni allri – en það mistókst á síðustu stundu eins og fyrri daginn.


