Júlíus Agnarsson (1953-2013) á veitingastaðnum Vegamót 2006. Júlíus var goðsögn í lifandi lífi og þá ekki síst vegna samstarfs við Stuðmenn. Skemmtilegri menn fyrirfundust vart í miðbæ Reykjavíkur á meðan hann var og hét og gekk þar um. Kvaddi aðeins sextugur að aldri.



