Félagið Æruvernd gengst fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19.apríl kl. 14 síðdegis undir heitinu „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.“
Á málþinginu verður fjallað um persónu- og æruvernd einstaklinga og mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar í slíkum málum. Fjallað verður um gallaða rannsókn í máli séra Friðriks Friðrikssonar heitins sem var á vegum KFUM og K og vanhugsuð viðbrögð aðila þegar teknar voru niður styttur og minnismerki varðandi sr. Friðrik.
Gerð verður grein fyrir viðleitni félagsins Æruverndar til að leita sannleikans í máli séra Friðriks og eiga samtal við alla aðila sem að því máli komu eftir því sem þeir hafa gefið kost á því, til að reyna eftir því sem mögulegt er að upplýsa málið.
Vegna viðleitni Æruverndar til að leita sannleikans í þessu máli sem öðrum verður þeim aðilum sérstaklega boðið, sem komið hafa að máli séra Friðriks, m.a. verður sr. Bjarna Karlssyni og Sigríði Júlíusdóttur boðið að sitja í pallborði á málþinginu auk heldur sem reynt verður að fá þá aðila sem hafa sett fram skoðanir í málinu til að mæta og gera grein fyrir þeim.
Meðal ræðumanna verða m.a. Björn Jón Bragason kennari, lögfræðingur og sagnfræðingur, Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum hæstaréttardómari og lögmaður, Valgerður Snæland Jónsdóttir ráðgjafi og fyrrv. sóknarnefndarformaður Digraneskirkju, auk félagsmanna í KFUM og K, Val og Fóstbræðrum; allt félaga, sem séra Friðrik Friðriksson stofnaði.
Einnig er stjórnmálasamtökum sem bjóða fram í Reykjavík boðið að gera grein fyrir afstöðu sinni til þess að styttan af séra Friðriki við Lækjargötu í Reykjavík var rifin niður og tekin traustataki af Reykjavíkurborg, sem neitar að afhenda hana þó hún eigi ekki styttuna og hafi aldrei átt, enda styttan gerð og sett á stall án atbeina borgarinnar.




