Home Blog Page 194

SISSEL (55)

0

Norska sópransöngkonan og Íslandsvinurinn Sissel Kyrkjebö, fædd í Bergen, er afmælisbarn dagsins (55). Í list sinni spannar hún öll svið tónlistar frá poppi upp í háklassík með undrarödd sem á sér vart hliðstæðu og heillað hefur heiminn.

SKOTHELD TILRAUN

0

Engin ástæða til að örvænta, þarna fór betur en á horfðist í fyrstu. Verið að prófa fyrstu skotheldu vestin með sýnikennslu í Bandaríkjunum 1923. Nú sanna þau ágæti sitt í spennumundum í sjónvarpi daglega um heim allan.

MESSI (37)

0

Argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messsi er afmælisbarn helgarinnar (37). Árin færast yfir en eftir stendur einn glæstasti ferill knattspyrnumanns síðan landi hans, Diego Maradona, var og hét.

AÐGÖNGUMIÐI Í PARÍSARHJÓLIÐ 2.500 KRÓNUR

0

Parísarhjólið við Reykjavíkurhöfn er farið að snúast. Aðgöngumiðar á staðnum en á vefsíðu rekstraraðila er nettilboð þar sem einstök ferð fyrir einn kostar 2.500 krónur, fjögurra manna fjölskylduferð 8.000 krónur og einn fullorðin plús barn 4.000 krónur.

TREGAFULLUR KVEÐJUPÓSTUR TIL ÁSTKONU

0
„Eftir 8 ára samband þá hafa leiðir okkar Ásdísar skilið,“ segir leikarinn og listamaðurinn Damon Younger í tregafullum kveðjupósti til ástkonu sinnar:
„Ásdís er ein glæsilegasta kona sem ég hef hitt og séð. Mér þykir magnað að hafa fengið að njóta þess heiðurs að hafa átt samleið og ferðalög með henni svífandi um á viti ævintýra fullum af list og sjónarspili þeirra staða sem hún leiddi mig á, og stundum ég hana hönd í hönd með ást og hlátur. Þakklæti er mér efst í huga, það þarf enginn að efast um hvort ég elski hana. Ég geri það. Eftir langt samtal um erfiða hluti tókst okkur saman að kveðja með ást og virðingu. Takk fyrir ferðalagið, samtölin, nándina og kennsluna Ásdís Mercedes Spanó.
p.s.
Þú átt ávallt stað í hjarta mínu. Yes it still beats…“

KRIS KRISTOFFERSON (88)

0

Fjöllistamaðurinn Krist Kristofferson er afmælisbarn dagsins (88). Hér er eitt af meistaraverkum hans, Sunday Morning Coming Down frá 1970:

LENGSTA RÚTUFERÐ Í HEIMI – LONDON KALKÚTTA

0

Á árunum 1957 til 1976 voru reglulegar rútuferðir frá Londin til Kalkútta á Indlandi. 32 þúsund kílómetra leið sem tók 50 daga fram og tilbaka.

Hægt var að halla sér í rútunni, þar var lítið eldhús og öll herlegheitin kostuðu þá aðeins 145 pund. Vinsælastar voru stoppistöðvarnar í Vínarborg, Istanbul og Íran þar sem farþegar skoðuðu sig um og fóru í búðir.

FALLEGAR FLUGFREYJUR

0

„Sú efsta í stiganum heitir Susann,“ segir Sigurgeir Orri Sigurgeirsson athafnamaður og bætir við:

„Flugfreyjurnar hjá Loftleiðum voru undantekningalaust íðilfagrar. Þekkið þið hinar?“

BYGGINGALÓÐIR VIÐ HÖFNINA BOÐNAR ÚT Á NÝ

0

Byggingarréttur fyrir allt að 177 íbúðir í hjarta borgarinnar við gömlu höfnina í Reykjavík hefur verið boðinn út og er tilboðsfrestur til 5. júlí nk.  Auk íbúða nær byggingarrétturinn einnig til atvinnu- og þjónustuhúsnæðis.

  • Á Hlésgötu 1 er heimilt að byggja allt að 110 íbúðir í 2-5 hæða í húsum. Heildarbyggingarmagn á lóðinni er 17.120 fermetrar.
  • Á Hlésgötu 2 er heimilt að byggja allt að 67 íbúðir í 2-4 hæða í húsum. Heildarbyggingarmagn þeirrar lóðar er 10.368 fermetr

Fyrri samningi um byggingarétt í Vesturbugt var rift vegna þess að framkvæmdir drógust úr hófi fram.  Í framhaldi af riftun samninga voru gerðar minniháttar breytingar frá fyrra deiliskipulagi m.a. að tvískipta lóðinni. Bjóðendur hafa nú val um bjóða í aðra lóðina eða báðar.

Nánar hér.

JEAN-PAUL SARTRE – „PEOPLE ARE STRANGE“

0

Fæðingardagur Jean-Paul Sartre (1905-1980) franska heimspekingsins og föður existensialismans þar sem fylgjendur höfðu eftir honum að „…helvíti væri annað fólk“. Hann var heiðraður með Nóbelsverðlaununum í bókmenntum 1964 og afmælislagið er við hæfi: People Are Strange: