Kjósandi í Reykjavík skrifar:
–
Get ekki orða bundist eftir að hafa fylgst með oddvitaslag Heiðu og Péturs í sjónvarpi og útvarpi. Alltaf hefur Pétur betur vegna þess að Heiða talar allt of hratt, ég og fjölskyldan skiljum bara ekki hvað hún er að segja. Pétur nýtur þess að vera með dýpri rödd og skilst vel á skjánum og í útvarpinu. Því er ráð mitt þetta: Talaður hægar, Heiða! Þú átt það skilið að skiljast.






