Klara Einars er að senda frá sér nýtt lag, „Kominn heim“ , þann 6. febrúar næstkomandi. Hún á að baki mjög skemmtilegt ár þar sem hún hélt áfram að vinna að tónlist og gefa út á milli þess sem hún kláraði stúdents próf frá Verslunarskólanum. Í sumar byrjaði hún að vinna með ungum upptökustjóra sem kallar sig Daybright og saman hafa þau verið að taka upp og semja mikið af efni sem er mjög spennandi og þetta lag er annað lagið sem hún gefur út úr því samstarfi.







