Líkt og skrá skyldi heimsbyggðina um þetta leyti fyrir rúmlega tvö þúsund árum, þá ber að skrá kílómetrastöðu allra bíla hér á landi um þessar mundir.
–
Einhverjum kynni að detta í hug að Samgöngustofa væri rétti staðurinn til að skrá stöðuna. Þar er jú bifreiðaskráin. Spyrja má hvenær sem er sólarhringsins, enda er Samgöngustofa með spjallmennið Ask til taks í þeim efnum.
–
Askur reyndist hins vegar eiga margt ólært.






